Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Fimmtudaginn 29. nóvember 2001, kl. 15:57:01 (2204)

2001-11-29 15:57:01# 127. lþ. 40.1 fundur 176#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), TIO (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 40. fundur, 127. lþ.

[15:57]

Tómas Ingi Olrich (andsvar):

Herra forseti. Það er alveg greinilegt að hv. þm. Össur Skarphéðinsson þarf að kynna sér málefnin á Írlandi betur en hann hefur gert. Það er ljóst að Írar hafa náð verulegum árangri með því að draga til sín fyrirtæki vegna skattfríðinda. Það á ekki síst við þegar fyrirtæki setjast þar að. Þau njóta skattafríðinda, þegar þau setjast þar að, í ákveðinn tíma en úr þessu er verið að draga hægt og rólega vegna þeirrar stefnu sem ríkir hjá Evrópusambandinu þannig að þetta liggur alveg ljóst fyrir og þetta er viðurkennt.

Að því er varðar seinna atriðið, þá fullyrðingu hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar að sá sem hér stendur hafi sagt að það ætti að gera sérsamninga við hvert og eitt ríki þá vil ég bara taka það fram að þau orð voru aldrei látin falla hér. Ég geri þess vegna ráð fyrir því að hv. þm. heyri bara það sem hann vill heyra og legg til að hann reyni að hlusta betur á það sem sagt er hér í þessari pontu en hann gerir greinilega.