Össur Skarphéðinsson (andsvar):
Herra forseti. Ég hef ekki kallað eftir stórum ræðum af hálfu hv. formanns utanrmn. Honum hefur tekist að skýra mál sitt, eftir atvikum vel eða illa, í andsvörum.
En það er rétt, hann á skilið afsökunarbeiðni frá mér vegna þess að ég var ekki staddur hérna þegar hann hélt ræðu sína. Ég var því miður bundinn, reyndar við pólitísk störf utan þings, en auðvitað hefði verið betra að ég hefði verið hér þá og komið fram með þau andrök sem ég á. Ég bið hann afsökunar á því, mér var bara ekki stætt hér.