Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Fimmtudaginn 29. nóvember 2001, kl. 16:38:08 (2225)

2001-11-29 16:38:08# 127. lþ. 40.1 fundur 176#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), ÖS (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 40. fundur, 127. lþ.

[16:38]

Össur Skarphéðinsson (andsvar):

Herra forseti. Ég ítreka það sem ég sagði áðan að það er ekkert í skoðun okkar sem bendir til að sá háttur sem við ræðum um mundi stangast í einhverju á við þá stefnu sem Evrópusambandið hefur núna. Við miðum auðvitað okkar samningskröfur við þá stefnu sem þarna er uppi og við viljum að það verði gert á grundvelli þessarar hlutfallsreglu. Það er alveg ljóst.

Við höfum síðan í ákaflega löngu máli, sem hv. þm. getur lesið í þessari bók, sett fram ákveðin samningsmarkmið sem koma einmitt í veg fyrir að útlendingar geti náð tangarhaldi hér á auðlindinni. Ég bendi t.d. á ákveðin lög sem sett hafa verið í Bretlandi sem Evrópusambandið hefur fallist á og koma í veg fyrir að útgerð í öðru landi geti komið inn og keypt sér veiðiheimildir beinlínis til þess að misnota þær í þeim tilgangi sem mér skildist á máli hv. þm.