Skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál

Fimmtudaginn 29. nóvember 2001, kl. 18:02:33 (2252)

2001-11-29 18:02:33# 127. lþ. 40.1 fundur 176#B skýrsla utanríkisráðherra um utanríkismál# (munnl. skýrsla), ÖJ (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 40. fundur, 127. lþ.

[18:02]

Ögmundur Jónasson (andsvar):

Herra forseti. Það er rétt hjá hv. þm. að ég tel að það eigi að reyna að þróa Sameinuðu þjóðirnar og þau tæki sem þær búa yfir í þessu veru þannig að þær geti beitt sér á alþjóðavettvangi og geri það með lýðræðislegu aðhaldi. Mér finnst það rangt, skaðlegt og hættulegt að Bandaríkjamenn hafi sjálfdæmi um lögregluaðgerðir í heiminum og dæmin sanna að þau hafa fyrst og fremst verið að þjóna sínum eigin hagsmunum.

Það sem ég var að koma inn á þegar ég vitnaði í vináttu þeirra við talibana fyrr á tíð er að Bandaríkjamenn hafa haft á sínu framfæri hryðjuverkamenn og hryðjuverkastjórnir um langt árabil. Um langt árabil studdu Bandaríkjamenn Saddam Hussein. Á þeim tíma beitti hann efnavopnum gegn Kúrdum og gegn Írönum svo aðeins eitt dæmi sé tekið og það var á þeirra vegum sem Osama bin Laden og félagar hans í talibanahreyfingunni fjármögnuðu starfsemi sína.