[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 127. lþ.
Iðnaðarráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):
Hv. þm. var með útúrsnúninga að mér fannst í sambandi við orð mín um störf í sjávarútvegi. Þau hafa ekki verið að flytjast á höfuðborgarsvæði, það er ekki hægt að horfa fram hjá því. Þau hafa hins vegar færst til á landsbyggðinni og ég geri mér fulla grein fyrir því að það veldur erfiðleikum, og það eru erfiðleikar sem þarf að taka á, en það er ekki þannig að stjórnvöld eigi að mínu mati að koma málum þannig fyrir að kvóti sé óhreyfanlegur frá einum stað til annars. Við getum ekki horft fram hjá því að um ákveðna markaðshugsun er að ræða og markaðskerfi í sjávarútveginum og það hefur þær afleiðingar að heimildir færast til. En þá þarf líka að hafa úrræði fyrir þá staði þar sem fiskveiðar hafa dregist mjög saman. Í tillögunum sem liggja fyrir hjá meiri hluta þeirrar nefndar sem var að störfum á vegum sjútvrh. eru svo sannarlega tillögur í þá átt að það verði gert.
Ég skal viðurkenna --- og hv. þm. skildi það rétt --- að ég var að tala um Valdimarsdóminn. Hann getur verið ósáttur við þann dóm en ég fullyrði að hann þýðir það sem hv. þm. sagði, að stjórna beri fiskveiðum með kvótakerfi. Það eru til álit sem segja annað en ég segi: Þau álit sem styrkja það og taka undir að þetta sé niðurstaða dómsins eru þau álit sem ég tek mark á.