[prenta uppsett í dálka] 49. fundur, 127. lþ.
Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Það kemur ítrekað fram í máli hv. þm. og líka núna áðan að ég og minn flokkur ýmist sitjum hjá eða greiðum atkvæði gegn þeim breytingum sem hér liggja fyrir. En það er eigi að síður svo að sumar breytinganna eru þess eðlis að við höfum lýst því yfir að við styðjum þær.