Umræða um frv. um ráðstafanir í ríkisfjármálum

Miðvikudaginn 12. desember 2001, kl. 10:39:46 (3038)

2001-12-12 10:39:46# 127. lþ. 50.93 fundur 228#B umræða um frv. um ráðstafanir í ríkisfjármálum# (um fundarstjórn), GAK
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 127. lþ.

[10:39]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Þar sem hæstv. forseti hóf stjórn fundarins með því að taka 12. mál á dagskrá vil ég mælast til þess að framhaldið verði þannig að ekki verði hafin umræða núna um stjórn fiskveiða heldur tekin fyrir önnur sjávarútvegsmál, t.d. Þróunarsjóðurinn og samningurinn um veiðar úr norsk-íslenska síldarstofninum, til þess að umræðan um sjávarútvegsmál geti þá hafist á þann hátt að a.m.k. þeir sem eru með nál. eða brtt. geti lokið að mæla fyrir sínum málum. Ég fer vinsamlega fram á að stjórn fundarins verði með þeim hætti.