Stjórn fiskveiða

Fimmtudaginn 13. desember 2001, kl. 12:33:32 (3184)

2001-12-13 12:33:32# 127. lþ. 53.1 fundur 193. mál: #A stjórn fiskveiða# (krókaaflamarksbátar) frv. 129/2001, EKG (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 53. fundur, 127. lþ.

[12:33]

Einar K. Guðfinnsson:

Virðulegi forseti. Hér er stigið skynsamlegt skref til að draga úr hvata til brottkasts á fiski. Brottkastið er mjög alvarlegt vandamál og hér er tekið á því. Þetta mun einnig stuðla að auknu framboði á fiski á fiskmörkuðum og, ef vel tekst til, treysta til lengdar vísindalegar hafrannsóknir hér við land. Ég segi því já.