[prenta uppsett í dálka] 53. fundur, 127. lþ.
Hjálmar Árnason:
Herra forseti. Hér er líklega í fyrsta sinn verið að breyta því fyrirkomulagi sem hefur ríkt um stjórn fiskveiða þannig að með kerfisbundnum hætti séu sjómenn skornir úr þeirri snöru að þurfa að neyðast til að kasta fiski fyrir borð. Hér er þetta gert með kerfisbreytingu og ég fagna því.
Um leið eru hafrannsóknir styrktar með markvissum hætti. Þetta kann að hafa jákvæð áhrif á markaðsverð á fiski. Það verður fróðlegt að sjá hver þróunin verður. Hér kunna að vera verðmæti sem nema 700--800 millj. kr. Það er mikilvægt að fylgjast með hversu mikið kemur inn og skoða síðan frekari þróun á þeim tekjum sem af þessu skapast. Ég fagna þessu og segi því já.