Stjórn fiskveiða

Fimmtudaginn 13. desember 2001, kl. 12:38:22 (3190)

2001-12-13 12:38:22# 127. lþ. 53.1 fundur 193. mál: #A stjórn fiskveiða# (krókaaflamarksbátar) frv. 129/2001, KVM (grein fyrir atkvæði)
[prenta uppsett í dálka] 53. fundur, 127. lþ.

[12:38]

Karl V. Matthíasson:

Herra forseti. Ég harma reyndar að ekki sé vilji fyrir því að taka smábátakerfið út úr þessari kvótasetningu sem það var sett í 1. sept. síðastliðinn og að það sé komið inn í stóra kerfið. Þannig er allt þetta komið í sama framsalsástandið sem hefur leitt böl yfir byggðir og bú.

Engu að síður styð ég þessa grein frv. Hún dregur úr brottkasti. Ég tel líka að um leið og þessi grein er sett í frv. að þá felist í því viðurkenning sjútvrh. á því að mikið brottkast hafi átt sér stað á Íslandsmiðum og er nú gott að það er komið í ljós.