Ferill 36. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002
Þskj. 36 — 36. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á lögum um húsaleigubætur, nr. 138/1997.
Flm.: Ásta R. Jóhannesdóttir, Guðrún Ögmundsdóttir.
1. gr.
Þrátt fyrir ákvæði 3. mgr. hafa einstæðir foreldrar sem búa tímabundið í sérstöku húsnæði á vegum Félags einstæðra foreldra rétt til húsaleigubóta.
2. gr.
Greinargerð.
Á 126. þingi var samþykkt breyting á lögum um húsaleigubætur þar sem einstaklingar sem dvelja á stúdentagörðum fengu rétt á greiðslu húsaleigubóta þótt þeir deildu salernis- og/eða eldunaraðstöðu með öðrum. Sömu réttindi öðluðust einnig þeir sem búa á sambýlum fyrir fatlaða. Þá fluttu flutningsmenn þessa frumvarps breytingartillögu um að þennan rétt til húsaleigubóta fengju einnig einstæðir foreldrar sem búa tímabundið með börnum sínum í húsnæði á vegum Félags einstæðra foreldra þar sem er sameiginleg salernis- og/eða eldunaraðstaða. Þessi tillaga var felld. Í ljósi þess að eftir gagngerar breytingar á húsnæði á vegum félagsins búa aðeins sex fjölskyldur við þessar aðstæður hverju sinni er þessi tillaga flutt að nýju í frumvarpsformi.
Prentað upp.