Ferill 89. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 89  —  89. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um greiðslur til sveitarfélaga vegna jarðskjálfta.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



     1.      Hefur verið tekinn saman sá kostnaður sem féll á sveitarfélög vegna jarðskjálftanna á Suðurlandi 17. og 21. júní 2000? Ef svo er, um hvaða upphæðir er að ræða og hver var kostnaður hvers sveitarfélags?
     2.      Hefur sveitarfélögunum verið bættur þessi kostnaður? Ef svo er, um hvaða upphæðir er að ræða, sundurliðað eftir sveitarfélögum?


Skriflegt svar óskast.