Ferill 92. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 92 — 92. mál.
Fyrirspurn
til viðskiptaráðherra um erlenda fjárfestingu.
Frá Svanfríði Jónasdóttur.
1. Hversu mikil var erlend fjárfesting á Íslandi á árunum 1998, 1999 og 2000?
2. Hvernig skiptist sú fjárfesting á milli atvinnugreina?
3. Hvernig skiptist erlend fjárfesting á Íslandi milli landa í árslok 2000?
4. Hve mikil voru viðskipti erlendra aðila með hlutabréf í íslenskum fyrirtækjum sem skilgreind voru sem verðbréfaviðskipti?
5. Hversu hátt hlutfall erlendra fjárfestinga eru fjárfestingar eignarhaldsfyrirtækja sem eru í eigu Íslendinga?
Skriflegt svar óskast.