Ferill 102. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 102  —  102. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um framhaldsskóla- og háskólanám með fjarkennslusniði.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hversu margir stunda nú nám með fjarkennslusniði, annars vegar á háskólastigi og hins vegar á framhaldsskólastigi? Svar óskast sundurliðað eftir kjördæmum.
     2.      Hversu margir stunduðu slíkt nám á síðasta skólaári?
     3.      Hvaða skólar á framhaldsskólastigi og háskólastigi bjóða upp á slíkt nám?
     4.      Hversu margir stunda slíkt fjarnám við einstaka skóla?


Skriflegt svar óskast.