Ferill 106. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 106 — 106. mál.
Fyrirspurn
til forsætisráðherra um opinber framlög til hagsmunasamtaka og frjálsra félagasamtaka.
Frá Ástu Möller.
1. Hvaða hagsmunasamtök eða frjáls félagasamtök fá opinbert framlag til reksturs starfsemi sinnar með gjaldi sem ákvarðað er með lögum?
2. Hvaða lagaákvæði er um að ræða í hverju tilviki?
3. Um hve háa fjárhæð er að ræða í hverju tilviki sl. fimm ár, sundurliðað eftir árum?
Skriflegt svar óskast.