Ferill 122. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 122 — 122. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um afskrifaðar skattskuldir.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur.
1. Hvernig skiptust beinar og óbeinar afskrifaðar skattskuldir milli einstaklinga og lögaðila árlega á árunum 1995–2001 og hvernig er áætlað að þær skiptist árið 2002, sundurliðað eftir tegundum skatta? Hve margir einstaklingar og lögaðilar fengu afskrifaðar skattskuldir?
2. Hver er skýringin á þreföldun afskrifta á skattskuldum á reikningi ársins 2000?
3. Hve hátt hlutfall af nettó-skattlagningu á lögaðila var afskrifað árlega á árunum 1995–2001?
4. Telur ráðherra ástæðu til sérstakra aðgerða vegna afskrifta á skattskuldum?
Skriflegt svar óskast.