Ferill 155. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 155  —  155. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um framkvæmd laga um opinberar framkvæmdir.

Frá Jóhönnu Sigurðardóttir.



     1.      Eru lög um opinberar framkvæmdir að einhverju leyti frávíkjanleg að mati ráðherra? Ef svo er, í hvaða tilvikum er heimilt að víkja frá ákvæðum þeirra? Hefur ákvæðum laganna í einhverjum tilvikum ekki verið fylgt á þessum grundvelli sl. þrjú ár? Ef svo er, hvaða framkvæmdir var þar um að ræða?
     2.      Eru dæmi þess að frumathugun og greinargerð um frumathugun hafi ekki verið unnin í samræmi við ákvæði 3. og 4. gr. laga um opinberar framkvæmdir á síðustu þremur árum? Ef svo er, við undirbúning hvaða opinberra framkvæmda var það ekki gert?
     3.      Hefur ráðherra í einhverjum tilvikum, á sl. þremur árum, mælt fyrir um sérstaka fjárveitingu til opinberrar framkvæmdar í frumvarpi til fjárlaga án þess að áætlunargerð skv. 7. og 8. gr. laga um opinberar framkvæmdir hafi legið fyrir? Ef svo er, í tengslum við hvaða framkvæmdir var þetta gert og um hversu háar fjárveitingar var að ræða í hverju tilviki fyrir sig?
     4.      Hefur í einhverjum tilvikum frá árinu 1999 verið greitt fé úr ríkissjóði til opinberrar framkvæmdar án þess að áætlunargerð skv. 7. og 8. gr. laga um opinberar framkvæmdir hafi legið fyrir? Ef svo er, til hvaða framkvæmda var féð greitt og um hversu háar fjárhæðir var að ræða í hverju tilviki fyrir sig?
     5.      Hversu margar byggingarnefndir eru starfandi á vegum hins opinbera, vegna hvaða framkvæmda eru þær starfandi og hversu víðtækt umboð hefur þeim verið fengið í hverju tilviki fyrir sig?
     6.      Í hverju felst sú aðstoð sem samstarfsnefnd um opinberrar framkvæmdir veitir fjármálaráðuneytinu í tengslum við fjármálalega framkvæmd laga um opinberar framkvæmdir?
     7.      Hefur samstarfsnefnd um opinberrar framkvæmdir sinnt því að rannsaka frumathuganir og áætlunargerðir svo sem henni er boðið að gera skv. 2. mgr. 18. gr. laga um opinberar framkvæmdir? Ef svo er, hefur nefndin einhvern tímann gert athugasemdir til ráðherra í kjölfar slíkrar rannsóknar?
     8.      Hefur samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir haft frumkvæði að því að verkleg framkvæmd væri stöðvuð eða að hún væri ekki hafin? Ef svo er, hvaða framkvæmdir áttu þá í hlut og á hvaða grundvelli beitti nefndin sér fyrir slíku?


Skriflegt svar óskast.