Ferill 187. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 198  —  187. mál.




Fyrirspurn



til landbúnaðarráðherra um starfssvæði og verkefni hjá Suðurlandsskógum.

Frá Kristjáni Pálssyni.



     1.      Hvernig skiptast núverandi verkefni Suðurlandsskóga eftir sýslum?
     2.      Hvaða verkefni eru í bígerð á starfssvæði Suðurlandsskóga?
     3.      Hefur ráðherra gert tillögu um aukin fjárframlög til Suðurlandsskóga eftir stækkun þess svæðis sem Suðurlandsskógar ná nú yfir?