Ferill 238. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 265 — 238. mál.
Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um útsendingar Ríkisútvarpsins um gervitungl.
Frá Guðmundi Árna Stefánssyni.
Hvað líður athugunum á að útsendingar Ríkisútvarpsins, hljóðvarps- og sjónvarpssendingar, skuli einnig fara um gervitungl þannig að mætt verði þörfum sjómanna á fjarlægum miðum, Íslendingum erlendis og þeim sem búa við léleg móttökuskilyrði hér á landi, sbr. ummæli menntamálaráðherra á Alþingi 3. mars 1999 um að það sé miðlunarleið sem skoða beri af mikilli alvöru?