Ferill 198. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 269  —  198. mál.




Svar



heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Þuríðar Backman um afgreiðslu S-merktra lyfja á landsbyggðinni.

    Fyrirspurnin hljóðar svo:
     1.      Hefur verið gengið frá þjónustusamningum við lyfsala á landsbyggðinni um afgreiðslu S-merktra lyfja?
     2.      Ef ekki, hvenær má búast við að það verði gert og hvernig verður afhending S-merktra lyfja skipulögð á landsbyggðinni?


    Ráðuneytið hefur lagt áherslu á að sjúklingar eiga að geta fengið afhent S-merkt lyf þar sem þeim hentar, þótt gert sé ráð fyrir að afgreiðsla lyfjanna fari aðallega fram á sjúkrahúsunum. Ekki er vitað til annars en að undanfarið hafi allir sjúklingar fengið lyf sín án vandkvæða. Þegar afhending á S-merktum lyfjum fer fram utan sjúkrahúss er fylgt ákveðnu verklagi þar sem lyfjabúðirnar hafa samband við sjúkrahúsapótekin og fá leyfi til afhendingarinnar.
    Landspítali–háskólasjúkrahús er eigi að síður að undirbúa gerð þjónustusamninga milli Sjúkrahúsapóteksins ehf. og lyfjabúða um afgreiðslu S-merktra lyfja. Það sama er í bígerð á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri. Gerð þessara samninga er fyrst og fremst öryggisatriði og eiga þeir að tryggja betur þjónustu við sjúklinga, bæði á landsbyggðinni og á höfuðborgarsvæðinu.