Ferill 173. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 297 — 173. mál.
Svar
umhverfisráðherra við fyrirspurn Ólafar Guðnýjar Valdimarsdóttur um gerð náttúruverndaráætlunar.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hvað líður gerð náttúruverndaráætlunar, sbr. gildandi lög um náttúruvernd þar sem segir að ráðherra skuli láta vinna náttúruverndaráætlun fyrir landið allt og leggja fyrir Alþingi eigi sjaldnar en á fimm ára fresti?
Samkvæmt 65. gr. laga nr. 44/1999, um náttúruvernd, skal umhverfisráðherra eigi sjaldnar en á fimm ára fresti láta vinna náttúruverndaráætlun fyrir landið allt og leggja fyrir Alþingi. Náttúruvernd ríkisins skal í samráði við Náttúrufræðistofnun Íslands, náttúrustofur og hlutaðeigandi náttúruverndarnefndir sjá um undirbúning og öflun gagna vegna áætlunarinnar.
Samkvæmt ákvæði til bráðabirgða I í sömu lögum skal umhverfisráðherra eigi síðar en árið 2002 leggja fyrir Alþingi í fyrsta sinn náttúruverndaráætlun skv. 65. gr.
Nú er unnið að gerð náttúruverndaráætlunar og var settur á fót sérstakur umsjónarhópur í því skyni, skipaður forstjórum Náttúruverndar ríkisins og Náttúrufræðistofnunar Íslands og starfsmanni umhverfisráðuneytisins. Stefnt er að því að fyrstu drög að náttúruverndaráætlun liggi fyrir í lok aprílmánaðar á næsta ári og er ætlun umhverfisráðuneytisins að kynna áætlunina og óska eftir umsögnum og athugasemdum næsta sumar og vinna úr þeim fyrir næsta haust og leggja áætlunina fyrir Alþingi fyrir árslok 2002.
Hin eiginlega vinna við gerð áætlunarinnar fer fram á vegum Náttúruverndar ríkisins í samstarfi við Náttúrufræðistofnun Íslands og fleiri aðila þar á meðal sveitarfélögin í landinu.
Sem stendur vinna Landmælingar Íslands að gerð stafræns kortagrunns í mælikvarðanum 1:500.000 sem ætlunin er að ljúka eigi síðar en árið 2004. Gerður hefur verið samningur við Landmælingar Íslands um kaup og afnot af þessum grunni og er í samstarfi við stofnunina verið að setja inn á hann mörk friðlýstra svæða í landinu. Notast er við nákvæm hnit þar sem þau liggja fyrir en annars staðar eru mörkin teiknuð inn eftir kennileitum. Á þeim svæðum þar sem áðurnefndur kortagrunnur er ekki tilbúinn er notaður stærri mælikvarði.
Náttúrufræðistofnun Íslands vinnur úr gagnagrunni sínum upplýsingar um mikilvæg svæði í samræmi við 66. gr. laga um náttúruvernd þar sem gerð er grein fyrir efnisatriðum náttúruverndaráætlunar. Mörk þessara svæða verða sett inn á kortagrunninn ásamt öðrum gögnum. Enn fremur vinna Náttúrufræðistofnun Íslands og Náttúruvernd ríkisins að því að skilgreina gerðir jarðmyndana og verður hafist handa við að setja skilgreiningarnar inn í fyrirliggjandi gögn. Þessi vinna mun væntanlega þróast og taka á sig endanlega mynd þegar náttúruverndaráætlun verður tilbúin. Rétt er að geta þess að jarðfræðikort af Íslandi er til í stafrænu formi í mælikvarðanum 1:500.000.
Orkustofnun vinnur að úttekt á stöðu þekkingar á jarðfræði Íslands og verður skýrsla þar að lútandi væntanlega tilbúin um næstu áramót. Til þess að hægt sé að gera allsherjar náttúruverndaráætlun er nauðsynlegt að fyrir hendi sé fullnægjandi þekking á náttúrufari landsins, jafnt lífríki sem jarðfræði. Orkustofnun er að gera úttekt á einu svæði sem er á náttúruminjaskrá og rætt hefur verið um að stofnunin annist sams konar úttekt á öðrum jarðmyndunum á náttúruminjaskrá. Kostnaður af þessum verkefnum er töluverður þannig að framhaldið ræðst að miklu leyti af því hvernig hægt verður að halda honum niðri, m.a. með því að nota upplýsingar sem er að finna annars staðar, svo sem hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Til greina kemur enn fremur að þessi vinna fari fram í auknum mæli á vegum náttúrustofa sveitarfélaganna og eru þau mál til athugunar.
Náttúruvernd ríkisins sendi öllum sveitarfélögum í landinu erindi þar sem vakin var athygli á gerð náttúruverndaráætlunar. Skv. 58. gr. náttúruverndarlaga skal m.a. leggja drög að friðlýsingarskilmálum fyrir viðkomandi sveitarfélög auk þess sem gert er ráð fyrir því að sveitarfélögin reki svokallaða fólkvanga. Áhugi sveitarfélaganna er mismikill en 25 sveitarfélög hafa haft samband við Náttúruvernd ríkisins í framhaldi af ósk stofnunarinnar um samráð við gerð náttúruverndaráætlunar. Umhverfisráðuneytið mun leita eftir samráði við sveitarfélögin þegar drög að náttúruverndaráætlun liggja fyrir næsta vor.
Auk áðurnefndra stofnana hefur Náttúruvernd ríkisins haft samráð við Hafrannsóknastofnunina, Landgræðslu ríkisins, Rannsóknastofnun landbúnaðarins, Skógrækt ríkisins, Þjóðminjasafns Íslands, Veiðimálastofnun og Líffræðistofnun, Raunvísindastofnun og Umhverfisstofnun Háskóla Íslands. Náttúruvernd ríkisins hefur enn fremur leitað til náttúrustofa sveitarfélaganna en þær eru í Bolungarvík, á Neskaupstað, í Stykkishólmi, Sandgerði, á Sauðárkróki og í Vestmannaeyjum.