Ferill 142. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 300  —  142. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Margrétar Frímannsdóttur um jafnréttisáætlun, stöðuveitingar og skipan í nefndir og ráð.

     1.      Hefur ráðuneytið gert sérstaka framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum til að tryggja jafnan hlut kvenna og karla í störfum innan ráðuneytisins og á vegum þess? Ef svo er, hvenær var það gert og hvað hefur verið gert til að framfylgja áætluninni?
    Ráðuneytið hefur ekki gert sérstaka framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum til að tryggja jafnan hlut karla og kvenna í störfum ráðuneytisins og á vegum þess. Hins vegar á fulltrúi félagsmálaráðuneytisins sæti í samráðshópi sem ætlað er að ganga frá jafnréttisstefnu Stjórnarráðsins í heild sinni. Ætlunin er að sú stefna birtist í sameiginlegri starfsmannahandbók Stjórnarráðsins sem liggur nú fyrir í lokadrögum. Stjórnendur ráðuneytisins eru afar meðvitaðir um jafnan hlut kynjanna við mat á umsóknum og við val á starfsfólki, sbr. III. kafla laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla, nr. 96/2000. Hæfni umsækjenda er meginforsenda við val en hlutföll kynja eru einnig höfð til hliðsjónar.

     2.      Hversu margar stöður hafa verið auglýstar á vegum ráðuneytisins síðustu þrjú ár og um hvaða stöður er að ræða? Hversu margir umsækjendur voru um hverja stöðu og hversu margir þeirra voru metnir hæfir til að gegna henni, skipt eftir kyni í báðum tilvikum? Hvort var kona eða karl ráðinn í umræddar stöður?
    Samtals hefur verið ráðið í sjö stöður á grundvelli auglýsinga eða eftir leit hjá ráðningarstofum á tímabilinu frá 31. október 1998 til 31. október 2001. Í fimm tilvikum voru konur ráðnar en í tveimur tilvikum voru karlar ráðnir, sbr. eftirfarandi:
     a.      Samtals fimm stöður hafa verið auglýstar á síðustu þremur árum, fjórar stöður lögfræðinga og ein staða viðskiptafræðings. Í þremur tilvikum voru konur ráðnar en í tveimur tilvikum karlar. Um fjórar stöður lögfræðinga sóttu samtals 29, 21 kona og 8 karlar. Ávallt er farið ítarlega yfir allar umsóknir og byggist niðurstaða ráðuneytisins á að velja hæfasta umsækjandann með hliðsjón af hlutfalli kynjanna. – Ráðning starfsmanns í stöðu viðskiptafræðings fór í gegnum ráðningarskrifstofu og mat hún umsóknir eftir hæfisskilyrðum í auglýsingu. Í tilvikum sem þessum skipuleggur ráðningarskrifstofan yfirleitt nokkur viðtöl á grundvelli umsókna í samráði við hlutaðeigandi yfirmann.
     b.      Í tvær stöður hefur verið ráðið í gegnum ráðningarstofur án auglýsinga. Í báðum tilvikum voru konur ráðnar.

     3.      Hefur á síðustu þremur árum verið ráðið í stöður á vegum ráðuneytisins sem ekki voru auglýstar? Ef svo er, um hvaða stöður er að ræða og hvort var kona eða karl ráðinn í umræddar stöður?
    Ráðið hefur verið í sjö stöður án auglýsinga á síðustu þremur árum. Ráðnar voru tvær konur og fimm karlar, sbr. eftirfarandi:
     a.      Ein staða fellur undir tilflutning starfa milli embætta. Í því tilviki var kona ráðin í stöðu stjórnarráðsfulltrúa.
     b.      Tvær stöður bílstjóra. Um sömu stöðuna er að ræða sem í hefur verið ráðið tvisvar sinnum. Í báðum tilvikum voru karlar ráðnir.
     c.      Fjórar afleysingastöður. Um er að ræða eina afleysingastöðu lögfræðings og þrjár sumarafleysingastöður samtals á þessum þremur árum. Þrír karlar voru ráðnir og ein kona.
    Til viðbótar framangreindum sjö stöðum hafa á síðustu þremur árum tveir lögfræðinemar verið í námsvist á vegum ráðuneytisins. Um er að ræða karla í báðum tilvikum.

     4.      Hvaða nefndir og ráð eru starfandi á vegum ráðuneytisins? Hve margir fulltrúar eru í hverri nefnd eða ráði, hvernig skiptast þeir eftir kynjum og hvenær voru þeir skipaðir?

Yfirlit yfir nefndir og ráð á vegum félagsmálaráðuneytis.

Verkefnisnefndir Fjöldi
fulltrúa
Karlar Konur Dags.
skipunar
Verkefnisstjórn sem hefur yfirumsjón með undirbúningi að stofnun reynslusveitarfélaga 5 4 1 29.7.1993
Framkvæmdastjórn Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna 6 4 2 22.5.2000
Stjórn Lánatryggingasjóðs kvenna 8 1 7 3.7.1997
Nefnd til að kanna launamun verkakvenna og verkakarla 3 1 2 4.6.1998
Nefnd til að skipuleggja þverpólitískar aðgerðir til að bæta hlut kvenna í stjórnmálum 7 7 28.9.1998
Nefnd til að fylgja eftir tillögum um félagsleg húsnæðismál sveitarfélaga 8 8 7.12.2000
Nefnd vegna málefna langveikra barna 11 3 8 29.1.2001
Starfshópur til að yfirfara skýrslu „auðlindanefndar“ 4 4 2.1.2001
Nefnd til að yfirfara verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga 6 5 1 18.1.2001
Nefnd til að yfirfara undanþágur frá fasteignaskatti 4 4 2.1.2001
Starfshópur er geri úttekt á álagningu og innheimtu sveitarfélaga á þjónustugjöldum 3 2 1 5.1.2001
Nefnd til að endurskoða III. kafla laga um tekjustofna sveitarfélaga, nr. 4/1995 9 7 2 14.2.2001
Stýrihópur til að fylgja eftir framkvæmd þingsályktunar um framkvæmdaáætlun til fjögurra ára til að ná fram jafnrétti kynjanna 3 1 2 9.12.1998
Samstarfsráð um meðferð barna og unglinga vegna vímuefnavanda, hegðunar- og geðraskana 7 3 4 4.1.2000
Starfshópur sem fjalla á um húsnæðismál á Vestfjörðum 5 5 14.2.2000
Nefnd er kanni aðstæður erlends vinnuafls og útlendinga með dvalarleyfi hér á landi 9 4 5 8.11.2000
Verkefnisstjórn árs fatlaðra 2003 26 10 16 10.10.2001
Framkvæmdanefnd árs fatlaðra 2003 4 2 2 10.10.2001
Starfshópur um úttekt á vernduðum vinnustöðum 3 3 27.4.2001
Nefnd til að vinna að heildarendurskoðun laga nr. 161/1998,
um húsnæðissamvinnufélög
5 4 1 3.5.2001
Nefnd um jafnréttisumsagnir vegna stjórnarfrumvarpa 3 3
Ráðgjafahópur vegna nýbúamiðstöðvar á Vestfjörðum 5 3 2 12.9.2001
Samtals fjöldi fulltrúa: 144 78 66
Hlutfallsleg skipting: 100% 54% 46%

Nefndir og ráð Fjöldi
fulltrúa
Karlar Konur Dags.
skipunar
Samráðsnefnd um stórslysavarnir í iðnaði 7 6 1 21.2.2001
Stjórn Greiningar- og ráðgjafarstofu ríkisins 5 4 1 15.12.2001
Starfsmenntaráð 15 12 3 08.01.01
Barnaverndarráð 3 1 2 1.1.2001
Stjórn vegna vinnueftirlits í landbúnaði 5 4 1 1.1.2001
Kærunefnd fjöleignarhúsamála 7 5 2 15.2.2001
Kærunefnd húsaleigumála 7 4 3 15.2.2001
Stjórn Vinnumálastofnunar 14 9 5 1.7.2001
Stjórn Atvinnuleysistryggingasjóðs 18 12 6 1.7.2001
Úrskurðarnefnd atvinnuleysisbóta 6 3 3 1.7.2001
Stjórn Tryggingasjóðs sjálfstætt starfandi einstaklinga 10 4 6 1.7.1997
Félagsdómur 9 7 2 1.11.1998
Ráðgjafarnefnd Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga 10 7 3 29.1.1999
Svæðisráð svæðisvinnumiðlunar höfuðborgarsvæðisins 18 9 9 1998
Svæðisráð svæðisvinnumiðlunar Suðurnesja 18 13 5 1998
Svæðisráð svæðisvinnumiðlunar Vesturlands 18 12 6 1998
Svæðisráð svæðisvinnumiðlunar Vestfjarða 18 13 5 1998
Svæðisráð svæðisvinnumiðlunar Norðurlands vestra 18 12 6 1998
Svæðisráð svæðisvinnumiðlunar Norðurlands eystra 18 13 5 1998
Svæðisráð svæðisvinnumiðlunar Austurlands 18 11 7 1998
Svæðisráð svæðisvinnumiðlunar Suðurlands 18 13 5 13.11.1998
Svæðisráð um málefni fatlaðra, Reykjavík 9 4 5 25.2.1999
Svæðisráð um málefni fatlaðra, Reykjanesi 11 5 6 11.2.1999
Svæðisráð um málefni fatlaðra, Vesturlandi 9 6 3 11.2.1999
Svæðisráð um málefni fatlaðra, Vestfjörðum 10 5 5 18.2.1999
Svæðisráð um málefni fatlaðra, Norðurlandi vestra 11 4 7 12.12.1999
Svæðisráð um málefni fatlaðra, Norðurlandi eystra 12 5 7 16.3.1999
Svæðisráð um málefni fatlaðra, Austurlandi 11 4 7 5.3.1999
Svæðisráð um málefni fatlaðra, Suðurlandi 12 7 5 12.2.1999
Kærunefnd húsnæðismála 6 3 3 1.2.1999
Samráðsnefnd um framkvæmd laga og reglugerða um húsaleigubætur 5 3 2 5.3.1998
Eftirlitsnefnd með framkvæmd laga um frjálsan atvinnu- og búseturétt launafólks 3 1 2 11.4.1998
Kærunefnd jafnréttismála 7 3 4 25.7.2000
Stjórn Íbúðalánasjóðs 10 7 3 28.12.1998
Stjórn Bjargráðasjóðs 10 8 2 7.12.1998
Stjórnarnefnd málefna fatlaðra 8 7 1 1.1.1999
Prófnefnd leigumiðlunar 4 3 1 17.3.2000
Skólanefnd Félagsmálaskóla alþýðu 8 3 5 1.6.1999
Úrskurðarnefnd félagsþjónustu sveitarfélaga 3 2 1 1.11.1999
Úrskurðarnefnd fæðingar- og foreldraorlofsmála 3 3 8.11.2000
Jafnréttisráð 18 7 11 12.9.2000
Prófnefnd eignaskiptayfirlýsinga 4 3 1 11.4.2000
Stjórn ábyrgðasjóðs launa 6 5 1 7.9.2000
Flóttamannaráð Íslands 15 7 8 17.12.1999
Fjölskylduráð 7 2 5 21.1.1998
Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga 7 7 25.11.1998
Samstarfsnefnd um starfsemi Alþjóðavinnumálastofnunarinnar 3 1 2 1993
Samráðsnefnd til að fjalla um framkvæmd reglna á sviði félagsmála sem gilda á Evrópska efnahagssvæðinu 12 7 5 1993
Nefnd um hönnun bygginga með tilliti til aðgengis fatlaðra 6 4 2 13.11.1991
Reikningsskila- og upplýsinganefnd í samræmi við 18. gr. reglugerðar um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga 9 7 2 27.2.2001
Stjórn Vinnueftirlits ríkisins 17 13 4 1.1.2001
Stjórn varasjóðs viðbótarlána 10 8 2 1.2.1999
Samtals fjöldi fulltrúa: 526 325 201
Hlutfallsleg skipting: 100% 62% 38%