Ferill 155. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 328 — 155. mál.
Svar
fjármálaráðherra við fyrirspurn Jóhönnu Sigurðardóttur um framkvæmd laga um opinberar framkvæmdir.
1. Eru lög um opinberar framkvæmdir að einhverju leyti frávíkjanleg að mati ráðherra? Ef svo er, í hvaða tilvikum er heimilt að víkja frá ákvæðum þeirra? Hefur ákvæðum laganna í einhverjum tilvikum ekki verið fylgt á þessum grundvelli sl. þrjú ár? Ef svo er, hvaða framkvæmdir var þar um að ræða?
Í lögum nr. 84/2001, um skipan opinberra framkvæmda, er að finna ákvæði sem veita visst svigrúm við tilhögun opinberra framkvæmda. Hér má nefna 13. gr. sem mælir fyrir um að sveitarfélag annist útboð framkvæmda ef um sameiginlega framkvæmd er að ræða, nema öðruvísi um semjist eða fjármálaráðherra ákveði annað. Einnig er mælt fyrir um það í sömu grein að samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir geti áskilið samþykki Framkvæmdasýslu ríkisins fyrir útboðslýsingu sjái sveitarfélag um útboð. Í 4. mgr. 17. gr. laganna er mælt fyrir um að fjármálaráðuneytinu sé heimilt að fela einstökum ríkisstofnunum umsjón nánar skilgreindra flokka opinberra framkvæmda, enda hafi þessar stofnanir aðstöðu til að annast þessi verkefni. Allt frá setningu laga um opinberar framkvæmdir fyrir rúmlega 30 árum hefur skort á að gerð hafi verið skilamöt um opinberar framkvæmdir. Að undanförnu hefur hins vegar verið gert átak í gerð skilamata og hefur skilamat verið gert í kjölfar allra opinberra framkvæmda á síðustu tveimur árum.
2. Eru dæmi þess að frumathugun og greinargerð um frumathugun hafi ekki verið unnin í samræmi við ákvæði 3. og 4. gr. laga um opinberar framkvæmdir á síðustu þremur árum? Ef svo er, við undirbúning hvaða opinberra framkvæmda var það ekki gert?
Fyrir setningu reglugerðar nr. 715/2001, um skipulag opinberra framkvæmda, rannsakaði fjármálaráðuneytið áætlunargerðina með aðstoð samstarfsnefndar um opinberar framkvæmdir eftir að hlutaðeigandi ráðuneyti óskaði heimildar til útboðs verksins. Í áætlunargerð felst fullnaðarhönnun verksins og er hún því mun ítarlegri og vandaðri en frumathugun sem er frumkönnun á verkefninu. Af þessum sökum hefur fjármálaráðuneytið almennt ekki rannsakað frumathugunina sérstaklega heldur hefur rannsóknin aðallega beinst að áætlunargerðinni sjálfri. Ráðuneytið hefur hins vegar gengið út frá því að til grundvallar áætlunargerðinni hafi legið frumathugun eins og lög mæla fyrir um. Í því skyni að styrkja framkvæmd laganna og bæta undirbúningsþátt verklegra framkvæmda hefur í reglugerð verið sett ákvæði sem mælir fyrir um að leggja beri frumathugun fyrir fjármálaráðuneyti eftir gerð hennar og óheimilt sé að hefja áætlunargerð fyrr en það hefur formlega samþykkt niðurstöður hennar. Jafnframt er ráðuneytið að vinna að verklags- eða leiðbeiningarreglum sem miða að því að skilgreina með nákvæmari hætti en verið hefur hvað frumathugunin eigi að innihalda.
3. Hefur ráðherra í einhverjum tilvikum, á sl. þremur árum, mælt fyrir um sérstaka fjárveitingu til opinberrar framkvæmdar í frumvarpi til fjárlaga án þess að áætlunargerð skv. 7. og 8. gr. laga um opinberar framkvæmdir hafi legið fyrir? Ef svo er, í tengslum við hvaða framkvæmdir var þetta gert og um hversu háar fjárveitingar var að ræða í hverju tilviki fyrir sig?
Stærstur hluti þeirra framkvæmda sem falla undir lög um skipan opinberra framkvæmda er fjármagnaður af sérstökum safnliðum einstakra ráðuneyta eins og t.d. „bygging sjúkrahúsa“ eða „sameiginlegt viðhald framhaldsskóla“ eða sjóðum eins og Framkvæmdasjóði aldraðra, Framkvæmdasjóði fatlaðra eða Endurbótasjóði menningarstofnana. Fjármálaráðuneytið gerir því í fæstum tilvikum tillögu um fjárveitingar til einstakra framkvæmda, heldur einstakra flokka framkvæmda. Skipting fjármagns niður á einstakar framkvæmdir á sér stað við hina þinglegu meðferð eða síðar af einstökum sjóðum. Fjármálaráðuneytið og samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir hefur síðan eftirlit með því að framkvæmdir séu ekki hafnar nema fyrir liggi fullnægjandi fjárheimildir og önnur skilyrði laganna séu uppfyllt.
4. Hefur í einhverjum tilvikum frá árinu 1999 verið greitt fé úr ríkissjóði til opinberrar framkvæmdar án þess að áætlunargerð skv. 7. og 8. gr. laga um opinberar framkvæmdir hafi legið fyrir? Ef svo er, til hvaða framkvæmda var féð greitt og um hversu háar fjárhæðir var að ræða í hverju tilviki fyrir sig?
Við útboð opinberra framkvæmda liggur fyrir útboðslýsing sem hefur verið yfirfarin af Framkvæmdasýslu ríkisins. Í útboðslýsingunni fylgja með fullnaðaruppdrættir og verklýsing framkvæmdar, nákvæm magntöluskrá og kostnaðaráætlun, tímaáætlun, greiðsluáætlun og verkáætlun. Ráðuneytið hefur talið að þessi gögn séu það ítarleg að þau uppfylli þau skilyrði sem gerð eru til áætlunargerðar samkvæmt tilgreindum ákvæðum laganna. Viðbygging við flugstöð Leifs Eiríkssonar uppfyllti þessi skilyrði ekki að fullu vegna hins óvenjulega aðdraganda sem varð að byggingu hennar, en fullnaðarhönnun var ekki unnt að ljúka vegna þeirra tímamarka sem framkvæmdinni var ætluð vegna Schengen-samningsins. Til að bregðast við þessum aðstæðum var farið fram á reglulegar kynningar framkvæmdarinnar bæði í samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir og hjá fjármálaráðuneytinu út framkvæmdatímann. Heildarkostnaður viðbyggingarinnar að meðtaldri verðlagshækkun var um fjórir milljarðar króna.
5. Hversu margar byggingarnefndir eru starfandi á vegum hins opinbera, vegna hvaða framkvæmda eru þær starfandi og hversu víðtækt umboð hefur þeim verið fengið í hverju tilviki fyrir sig?
Á vegum fjármálaráðuneytisins er einungis starfandi ein nefnd á frumathugunarstigi sem hefur það hlutverk að gera úttekt á húsnæðismálum tollstjórans í Reykjavík. Umboð nefndarinnar nær til þess að gera tillögur til ráðuneytisins: a) hvort æskilegt sé að sameina alla starfsemi tollstjóraembættisins á einn stað, b) gera tillögu um hvar æskilegt sé að embættið sé staðsett, c) hver sé húsnæðisþörf embættisins í dag og áætla þróun til næstu tíu ára. Ráðuneytinu er ekki kunnugt um hve margar bygginganefndir eru starfandi á vegum annarra ráðuneyta né hversu víðtækt umboð þeim hefur verið fengið.
6. Í hverju felst sú aðstoð sem samstarfsnefnd um opinberrar framkvæmdir veitir fjármálaráðuneytinu í tengslum við fjármálalega framkvæmd laga um opinberar framkvæmdir?
Í samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir eiga sæti formaður fjárlaganefndar Alþingis eða sérstaklega tilnefndur fulltrúi nefndarinnar, forstjóri Framkvæmdasýslu ríkisins og ráðuneytisstjóri fjármálaráðuneytisins. Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir móttekur þau erindi sem berast ráðuneytinu vegna opinberra framkvæmda og yfirfer hvort áætlunargerðin uppfylli skilyrði 7. og 8. gr. laganna og hvort fullnægjandi fjárheimildir séu fyrir hendi fyrir þeim áfanga framkvæmdar sem ljúka á. Nefndin gerir síðan tillögur til fjármálaráðuneytisins þar sem lagt er mat á það hvort ofangreind skilyrði eru uppfyllt og hvort heimila eigi útboð framkvæmdarinnar.
7. Hefur samstarfsnefnd um opinberrar framkvæmdir sinnt því að rannsaka frumathuganir og áætlunargerðir svo sem henni er boðið að gera skv. 2. mgr. 18. gr. laga um opinberar framkvæmdir? Ef svo er, hefur nefndin einhvern tímann gert athugasemdir til ráðherra í kjölfar slíkrar rannsóknar?
Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir hefur ekki rannsakað frumathuganir nema í undantekningartilvikum eins og komið hefur fram. Hafi rannsókn nefndarinnar á áætlunargerðinni leitt til þeirrar niðurstöðu að henni teljist að einhverju leyti ábótavant eða fjárheimildir skorti þá hefur nefndin frestað málinu og óskað skýringa eða viðbótargagna frá viðkomandi ráðuneyti. Berist fullnægjandi skýringar og gögn ásamt því að áætlunargerðin fullnægir að öðru leyti 7. og 8. gr. laganna hefur nefndin lagt til við fjármálaráðuneytið að heimila útboð framkvæmdarinnar. Formaður nefndarinnar hefur metið það í hverju tilviki fyrir sig hvort ástæða sé til þess að gera ráðherra grein fyrir stöðu einstakra mála ef þörf er talin á.
8. Hefur samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir haft frumkvæði að því að verkleg framkvæmd væri stöðvuð eða að hún væri ekki hafin? Ef svo er, hvaða framkvæmdir áttu þá í hlut og á hvaða grundvelli beitti nefndin sér fyrir slíku?
Samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir frestar oft afgreiðslu erinda og þar með í sumum tilvikum framkvæmdinni sjálfri telji hún þau ekki fullnægja kröfum um málatilbúnað fyrir nefndinni eða vegna þess að þörf er á nánari upplýsingum eða skýringum. Í öðrum tilvikum hefur hún lagt til að erindum sé hafnað ef þau uppfylla ekki lögbundin skilyrði. Á meðfylgjandi yfirliti er að finna þau mál sem borist hafa nefndinni á síðustu tveimur árum og hún hefur frestað eða lagt til að verði hafnað uns frekari upplýsingar eða skilyrði liggja fyrir. Hafa ber þó í huga að mörg þessara mála voru þess eðlis að hér var einungis um frestun að ræða þar til nefndin fékk umbeðnar upplýsingar eða skýringar þannig að hægt væri að taka afstöðu til framhalds málsins.
Yfirlit yfir opinberar framkvæmdir á árunum 2000–2001 þar sem samstarfsnefnd um opinberar framkvæmdir frestaði máli eða mælti með stöðvun framkvæmda uns frekari upplýsingar lægju fyrir eða lagaskilyrði væru uppfyllt.
| Staðsetning framkvæmdar | Eðli framkvæmdar | Hvernig afgreitt |
| Heilsuverndarstöð Reykjavíkur, mæðradeild | Endurbætur. | Ekki lá fyrir samþykki Reykjavíkurborgar á framkvæmdum og ekki hafði verið tekin ákvörðun um framtíðarnýtingu húsnæðisins. Erindinu því hafnað. |
| Fræðslumiðstöð á Þingvöllum | Bygging fræðslumiðstöðvar. | Frestað til að afla nánari upplýsinga um framkvæmdatímann. |
| Kaup á leikfanga- og ráðgjafarmiðstöð í Stykkishólmi | Kaup á fasteign. | Frestað þar sem ekki lá fyrir staðfesting frá Framkvæmdasjóði fatlaðra um að hann greiði kaupverðið. |
| Þjóðminjasafn | Síðari áfangi endurbyggingar Þjóðminjasafns. | Frestað til að afla frekari upplýsinga. |
| Þjónustuskáli Alþingis | Útboð á síðari áfanga nýbyggingar þjónustuskála Alþingis. | Frestað til að afla frekari upplýsinga um hvernig fjárveitingum yrði háttað. |
| Landlæknisembættið | Ósk um að taka á leigu Túngötu 14 í Reykjavík undir starfsemi embættisins. | Erindinu hafnað, enda hefði ekki verið gerð grein fyrir hvernig fjármagna ætti aukinn kostnað vegna flutnings og leigu á nýju húsnæði. |
| Skrifstofubygging Flugmálastjórnar | Endurbætur á þaki flugturnsins o.fl. | Frestað uns staðfesting bærist á því að kostnaður rúmaðist innan fjárheimilda stofnunarinnar. |
| Sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum | Endurbætur. | Útboð ekki samþykkt þar sem áfangaskipting verksins gerði ráð fyrir að framkvæma umfram fjárveitingar í fyrsta áfanga verksins. |
| Fjölbrautaskóli Vesturlands | Endurbætur. | Útboð ekki samþykkt þar sem áfangaskipting verksins gerði ráð fyrir að framkvæma umfram fjárveitingar í fyrsta áfanga verksins. |
| Sjúkrahús Suðurlands | Heimild til áætlunargerðar vegna viðbyggingar við Sjúkrahús Suðurlands. | Málinu frestað þar til nefndin hefði fengið í hendur niðurstöður frumathugunar, þar á meðal þarfagreiningu ásamt frekari upplýsingum. |