Ferill 214. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 334 — 214. mál.
Svar
sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Svanfríðar Jónasdóttur um rannsóknir á áhrifum veiðarfæra.
Ráðuneytið fór þess á leit við Hafrannsóknastofnunina að hún tæki saman svar við fyrirspurninni og fer svar hennar hér á eftir.
1. Hve margir veiðarfærasérfræðingar eru starfandi á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar og hvar á landinu eru þeir staðsettir?
Á vegum Hafrannsóknastofnunarinnar starfar sem stendur enginn sérfræðingur í fullu starfi að veiðarfærarannsóknum eingöngu. Meginástæðan er sú að sérfræðingur stofnunarinnar á þessu sviði lést um aldur fram fyrir um þremur árum og þrátt fyrir margháttaðar tilraunir hefur ekki ennþá tekist að ráða sérfræðing í stað hans. Á seinasta ári auglýsti Hafrannsóknastofnunin sérstaklega styrk til framhaldsnáms á þessu sviði og hóf styrkþeginn framhaldsnám í Bergen sl. haust. Væntir stofnunin mikils af styrkþeganum er væntanlega kemur til starfa á stofnuninni eftir um það bil ár. Þess má geta að skortur á veiðarfærasérfræðingum er ekki séríslenskt vandamál því á undanförnum árum hafa komið fyrirspurnir frá erlendum aðilum um sérfræðinga á þessu sviði hérlendis.
Þrátt fyrir það sem sagt er hér að ofan ber hins vegar að geta þess að veiðarfærarannsóknir hafa á engan hátt legið niðri á stofnuninni á undanförnum árum. Flestir fiskifræðingar stofnunarinnar, þó á öðrum sviðum starfi, hafa nokkra menntun og verulega reynslu á sviði veiðarfærafræða og hafa nokkrir þeirra í sameiningu stýrt veiðarfærarannsóknum stofnunarinnar. Þá hafa og þeir sérfræðingar sem vinna að rannsóknum á áhrifum veiðarfæra á lífríki sjávar og á botndýralíf einnig tengst veiðarfærarannsóknunum. Flestir eru þessir starfsmenn starfandi í höfuðstöðvum stofnunarinnar í Reykjavík en einnig hafa tengst rannsóknunum útibússtjórar og starfsmenn útibúanna á landsbyggðinni.
2. Hvaða rannsóknir eru í gangi á vegum stofnunarinnar á áhrifum veiðarfæra á lífríki sjávar?
Hér á eftir er getið helstu verkefna sem unnið er að á sviði rannsókna á veiðarfærum og áhrifum þeirra á vistkerfi sjávar. Tilgangur þessara tilrauna er í flestum tilfellum sá að bæta umgengni um auðlindina. Tekið skal fram að í flestum tilfellum er um að ræða langtímaverkefni en þeir áfangar sem þegar er lokið hafa fram til þessa skilað margvíslegum niðurstöðum. Má þar nefna að góðum árangri hefur verið náð í notkun fiskiskilju við rækjuveiðar, enda slíkum búnaði best við komið þar sem stærðarmunur á sóknartegund og meðafla er mikill. Sömu sögu má segja um rannsóknir á smárækju- og smáfiskaskiljum sem leitt hafa til nýrra eða breyttra reglugerða um gerð og notkun þeirra hér við land. Stefnt er að áframhaldandi vinnu við smáfiskaskiljur á komandi árum. Þá er og verið að vinna að frekari tillögum um breytingar á möskvastærð við togveiðar, t.d. humarveiðar. Í flestum tilvikum er því þróun veiðarfæra langtímaverkefni er tekur til nokkurra ára.
Áhrif botnvörpu á samfélög botndýra.
Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort veiðar með botnvörpu hafi marktæk áhrif á samfélög botndýra og botngerð. Gagnasöfnun fór fram árin 1997 og 1998 í Stakksfirði. Frumúrvinnslu 349 sýna er lokið og lokafrágangur niðurstaðna til birtingar er í fullum gangi. Niðurstöður benda til þess að botnvörpuveiðar hafi lítil áhrif á botndýralíf í Stakksfirði, þar sem um leirkenndan botn á litlu dýpi er að ræða.
Umfang og dreifing botnvörpuveiða.
Gögn úr aflaskýrslugrunni Hafrannsóknastofnunarinnar eru notuð í sérstöku verkefni til að meta umfang og dreifingu veiða með fiskibotnvörpu. Yfirferð botnvörpunnar er heppilegasti mælikvarðinn til að meta umfang veiðanna. Þar sem stærri botnvörpur eru notaðar á djúpsævi en vörpur á grunnsævi eykst yfirferð hvers togs með auknu dýpi. Áhrif hverrar togstundar á lífríki botns eru því líklega meiri á djúpsævi en á grunnsævi. Gagnaúrvinnslu er lokið og er verið að ganga frá birtingu niðurstaðna í vísindariti.
Þéttleiki „áfánu“ metinn með ljósmyndum.
Könnuð hefur verið útbreiðsla, samsetning og þéttleiki áfánu (dýr á yfirborði botns) með tilliti til botngerðar sem og áhrif veiðarfæra á samfélög áfánu. Við rannsóknirnar var notuð neðansjávarmyndavél. Úrvinnslu mynda er lokið. Dýralíf á botni svæðisins var fjölskrúðugt en aða var einkennistegund svæðisins. Frekari úrvinnslu gagna og greinarskrifum lýkur á næsta ári.
BIOICE.
Hér er um að ræða umfangsmiklar grunnrannsóknir sem miða að því að kortleggja alla botndýrafánu innan íslensku efnahagslögsögunnar, frá grunnslóð og niður á 2.000 m dýpi. Rannsóknirnar hófust 1994 og hafa síðan þá nánast árlega verið farnir leiðangrar á rannsóknaskipum stofnunarinnar til sýnasöfnunar. Út frá þeim umfangsmikla og einstæða grunni sem verið er að byggja upp með þessum rannsóknum er ætlunin að fylgjast með breytingum sem síðar kunna að verða á botndýrafánunni vegna áhrifa veiða og annarra umhverfisþátta.
Smáfiskaskiljur.
Árin 2000–2001 hafa verið gerðar tilraunir með rússnesk-norska smáfiskaskilju (Sort-V) við ýsuveiðar á togbáti fyrir Suðurlandi, togara fyrir Norðurlandi og á Árna Friðrikssyni RE 200 úti fyrir Vestfjörðum, þar sem togað var með tveimur vörpum samtímis. Skiljan reyndist í alla staði mjög vel við að skilja út smáfisk og hvað varðar þorsk reyndust t.d. aðeins að meðaltali um 21% undir 55 sm með skilju samanborið við um 47% án skilju en viðmiðunarmörk við veiðieftirlit eru 25% undir 55 sm. Samkvæmt tillögu Hafrannsóknastofnunarinnar var Sort-V skiljan löggilt af sjávarútvegsráðuneytinu vorið 2001.
Árið 2001 voru kannaðar endurbættar gerðir íslensku EX-it smáfiskaskiljunnar þar eð þessi skilja hefur reynst misjafnlega eftir trollum og tegundum nets. Fyrsta rannsóknin í febrúar skilaði ekki árangri. Í ágúst og september sl. var hins vegar gerð tilraun með tvær íslenskar skiljur í sama trollinu, sú stærri í efra byrði vörpunnar en hin í því neðra. Reyndist þetta vel í miklum afla og stærðarblönduðum þorski. Prófað var með 60 mm og 65 mm rimla bili. Árangur var að þessu sinni sambærilegur við það besta sem náðst hefur í því að skilja út smáfisk. Enn frekari tilraunir eru fyrirhugaðar á öðrum gerðum skipa áður en af tillögum um löggildingu getur orðið af hálfu stofnunarinnar.
Smárækjuskilja.
Á undanförnum árum hafa verið gerðar samanburðarrannsóknir á rækjuvörpum með og án smárækjuskilju. Hlutfall undirmálsrækju minnkaði um 33% (miðað við fjölda) með því að nota smárækjuskilju og 36 mm leggpoka, samanborið við notkun 36 mm leggpoka án skilju. Einnig hafa verið bornar saman 36 mm leggpoki og 40 mm leggpoki en við þá breytingu minnkaði hlutfall undirmálsrækju um 23,4%. Nokkru meira tapaðist hins vegar af stærri rækju með stækkun möskvans en með skiljunni.
Möskvastærðartilraunir.
Samanburðarrannsóknir á hefðbundinni dragnót með 135 mm möskva og stórriðinni nót með 155–180 mm möskva, sem gerðar voru á Vestfjarðamiðum árið 2000, bentu til þess að aflatap af nýtanlegum fiski í svo stórriðna nót væri tæpast ásættanlegt fyrir þorra útgerðaraðila nema við sérstakar aðstæður og aflasamsetningu.
Í nóvember 2000 var á hörpudisksbát borin saman aflasamsetning í skelpokum með 60 mm og 70 mm stálhringjum. Lágmarkslöndunarstærð á hörpudiski er 60 mm og því hefur hringjastærð í skelplógum lengst af verið sú sama. Eins og við mátti búast fékkst nokkru minna af smærri skel með stærri hringjunum en munurinn var þó ekki eins afgerandi og ætla mætti fyrir þær sakir að smæsti hörpudiskurinn festir sig gjarnan við stærri tómar skeljar sem ekki sleppa í gegn.
Í byrjun þessa árs voru prófaðir 135 og 155 mm trollpokar á hinum nýja Árna Friðrikssyni RE 200 í tengslum við prófanir á tveggja-trolla útbúnaði skipsins.
Á næstu vikum stendur til að ljúka tilraunum með leggglugga á fiskitrolli á Dröfn RE 35.
Atferli og dauði uppsjávarfiska við flottrollsveiðar.
Í janúar og febrúar voru og gerðar tilraunir til þess að fylgjast með loðnutorfum, stærð þeirra, lögun og atferli gagnvart flotvörpu, veiðihæfni vörpunnar og loks yfirlifun þeirra fiska sem smjúga vörpuna. Sambærilegar tilraunir voru einnig gerðar til þess að skoða hegðun síldar. Útbúnar voru skjóður sem hengdar voru á trollið til að safna sýni af því sem fer út um möskva. Fengin var að láni neðansjávarmyndavél frá Hafrannsóknastofnuninni í Bergen og hún var fest á trollið. Með þessu var ætlunin að mynda atferli loðnu og síldar og meta síðan ástand þess fisks sem smaug troll möskvana. Vegna margvíslegra tæknilegra erfiðleika gengu þessar tilraunir þó ekki sem skyldi. Hér er hins vegar um mikilvægt mál að ræða og því er stefnt að frekari rannsóknum.