Ferill 280. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 337  —  280. mál.




Fyrirspurn



til félagsmálaráðherra um launagreiðslur og tryggingagjald sveitarfélaga.

Frá Kristjáni L. Möller.



     1.      Hverjar voru heildarlaunagreiðslur og greitt tryggingagjald 25 stærstu sveitarfélaganna og stofnana þeirra (þ.m.t. hlutafélaga þeirra, s.s. orkuveitna) sl. fimm ár, skipt eftir sveitarfélögum?
     2.      Hversu mikið hækkar álagt tryggingagjald sömu sveitarfélaga í krónum talið samanborið við árið 2000, ef tryggingagjaldið hækkar um 0,77 prósentustig eins og boðað er í frumvarpi til laga um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald o.fl. (þskj. 114, 114. mál)?


Skriflegt svar óskast.