Ferill 284. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 342  —  284. mál.




Fyrirspurn



til iðnaðarráðherra um smávirkjanir í sveitum.

Frá Gunnari Pálssyni.



     1.      Hvað líður efndum á tillögum nefndar um málefni raforkubænda sem skilaði áliti í júní á síðastliðnu ári?
     2.      Er einhver áætlun í gangi um að styrkja dreifikerfi raforku í sveitum og leggja þriggja fasa rafmagn þannig að væntanlegir raforkubændur geti selt frá sér umframframleiðslu?