Ferill 335. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 427 — 335. mál.
Fyrirspurn
til heilbrigðisráðherra um rekstrarleyfi fyrir heilbrigðisþjónustu.
Frá Ástu Möller.
1. Í hvaða tilvikum þarf rekstrarleyfi til að hefja starfsemi sem fellur undir lög um heilbrigðisþjónustu, sbr. 26. og 27. gr. laganna?
2. Í hvaða tilvikum þurfa heilbrigðisstarfsmenn sem hafa hlotið starfsréttindi frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra að sækja sérstaklega um leyfi til að starfrækja stofur fyrir starfsemi sína?
3. Hve margar umsóknir um rekstrarleyfi, sbr. 26. og 27. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, hafa borist ráðherra á síðustu fimm árum? Um hvaða starfsemi hefur verið sótt? Hverjum þessara umsókna hefur verið hafnað og á hvaða grundvelli?
Skriflegt svar óskast.