Ferill 346. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 466  —  346. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um persónuskrár.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hvaða skrár heldur lögreglan um brotafólk og þá sem tengst hafa brotum? Hver er tilgangurinn með því að halda slíkar skrár?
     2.      Á hvaða lögum eða reglugerðum byggjast slíkar skrár?
     3.      Að hvaða skrám um fólk hafa fyrirtæki, ríkisstofnanir og/eða almenningur aðgang? Hver veitir þann aðgang og á hverju eru slíkar aðgangsheimildir byggðar?


Skriflegt svar óskast.