Ferill 1. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 482 — 1. mál.
Breytingartillögur
við frv. til fjárlaga fyrir árið 2002.
Frá meiri hluta fjárlaganefndar (ÓÖH, EOK, ArnbS, ÍGP, KPál, TIO, DrH).
1. Við 7. gr. Nýr liður:
2.25 Að selja mannvirki á jörðinni Kópareykjum, Borgarfjarðarsveit, Borgarfjarðarsýslu.
2. Við 7. gr. Liður 3.16 falli brott.
3. Við 7. gr. Liður 3.9 orðist svo:
3.9 Að selja íbúðarblokk við Kópavogsbraut, sem nú er nýtt fyrir fatlaða, ásamt landspildum í nágrenni hennar, og ráðstafa hluta af andvirðinu til að koma upp þremur sambýlum fyrir fatlaða og til uppbyggingar á Landspítala – háskólasjúkrahúsi.
4. Við 7. gr. Nýir liðir:
3.19 Að selja eignarhlut ríkisins í fasteignum á Varmalandi í Borgarfirði, sem nýttar hafa verið fyrir starfsemi Kennaraháskóla Íslands og verja andvirðinu til nýbyggingar skólans.
3.20 Að selja eignarhlut ríkisins í fasteigninni Eskihlíð 5, Sauðárkróki.
3.21 Að selja eignarhlut ríkisins í heilsugæsluseli að Helluhrauni 17, Mývatnssveit, og kaupa eða leigja annað hentugra.
3.22 Að selja eignarhlut ríkisins í Rauðarárstíg 31 og verja andvirði sölunnar til uppbyggingar á Landspítala – háskólasjúkrahúsi.
5. Við 7. gr. Liður 4.15 orðist svo:
Að selja jörðina Kvígsstaði, Borgarfjarðarsveit, Borgarfjarðarsýslu.
6. Við 7. gr. Liður 4.21 orðist svo:
Að selja jörðina Bárustaði, Borgarfjarðarsveit, Borgarfjarðarsýslu.
7. Við 7. gr. Nýir liðir:
4.38 Að selja jörðina Tjaldbúðir, Staðarsveit, Snæfellsnessýslu.
4.39 Að selja jörðina Kolfreyju, Fáskrúðsfjarðarhreppi, Norður-Múlasýslu.
4.40 Að selja hluta af jörðinni Dalir II, Fáskrúðsfjarðarhreppi, Suður-Múlasýslu.
4.41 Að selja hluta af jörðinni Stað í Staðardal, Hólmavíkurhreppi, Strandasýslu.
4.42 Að selja hluta af jörðinni Knappstöðum í Fljótum, Skagafirði, Skagafjarðarsýslu.
4.43 Að selja hluta af jörðinni Brúum í Aðaldælahreppi, Suður-Þingeyjarsýslu.
4.44 Að selja hluta af jörðinni Kirkjuferjuhjáleigu, Ölfusi, Árnessýslu.
4.45 Að selja eða leigja um 277 ha landspildu í eigu ríkisins í Gerðahreppi norðan Sandgerðisvegar og sunnan Garðskagavegar sem ekki er nýtt í þágu varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli.
4.46 Að selja jörðina Hvítsstaði í Borgarbyggð, Mýrasýslu.
4.47 Að selja jörðina Flateyri, Fjarðabyggð, Suður-Múlasýslu.
4.48 Að selja jörðina Framnes, Fjarðabyggð, Suður-Múlasýslu.
4.49 Að selja jörðina Hraun, Fjarðabyggð, Suður-Múlasýslu.
4.50 Að selja jörðina Sómastaðagerði, Fjarðabyggð, Suður-Múlasýslu.
4.51 Að selja jörðina Sómastaði, Fjarðabyggð, Suður-Múlasýslu.
8. Við 7. gr. Liður 6.30 falli brott.
9. Við 7. gr. Liður 6.1 orðist svo:
Að kaupa fasteignir fyrir Stjórnarráð Íslands á sk. Stjórnarráðsreit við Arnarhvol í Reykjavík.
10. Við 7. gr. Liður 6.3 orðist svo:
Að kaupa fasteignir sem nauðsynlegar eru vegna skipulags Menntaskólans í Reykjavík og eru innan svæðis sem markast af Lækjargötu, Amtmannsstíg, Þingholtsstræti og Bókhlöðustíg.
11. Við 7. gr. Liður 6.17 orðist svo:
Að kaupa húsnæði við Eiríksgötu fyrir starfsemi Landspítala – háskólasjúkrahúss.
12. Við 7. gr. Nýir liðir:
6.31 Að kaupa viðbótarhúsnæði fyrir Heilsugæsluna í Hafnarfirði.
6.32 Að kaupa jörðina Galtastaðir fram í Hróarstungu, Norður-Héraði, Norður-Múlasýslu.
6.33 Að kaupa eignarhlut St. Fransiskusreglunnar í St. Fransiskusspítalanum, Stykkishólmi.
6.34 Að kaupa eignarhlut Reykhólahrepps í Flatey á Breiðafirði og taka til þess nauðsynleg lán.
6.35 Að kaupa eða leigja húsnæði fyrir heilsugæslustöðvar á höfuðborgarsvæðinu og taka til þess nauðsynleg lán.
13. Við 7. gr. Nýr liður:
7.13 Að lækka fjárheimildir á fjárlagaliðunum 996 Íslenska upplýsingasamfélagið hjá ráðuneytum alls um 100 m.kr. og færa þær á liðinn 09-481 Útgjöld samkvæmt heimildaákvæðum til að framfylgja tillögu um lækkun útgjalda í þeim verkefnum. Jafnframt að færa fjárheimildir á milli fjárlagaliðanna 996 Íslenska upplýsingasamfélagið hjá ráðuneytum og annarra fjárlagaliða eftir því sem við á vegna mótframlaga stofnana til verkefna á þessu sviði sem dregið verður úr eða fallið frá.