Ferill 360. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 514  —  360. mál.




Fyrirspurn



til sjávarútvegsráðherra um flutning veiðiheimilda fiskveiðiárin 1996/1997 til 2000/2001.

Frá Jóhanni Ársælssyni.



     1.      Hverjir voru heildarflutningar annars vegar aflamarks og hins vegar aflahlutdeilda í botnfisktegundum frá og til einstakra sveitarfélaga á fiskveiðiárunum 1996/1997 til 2000/2001, sundurliðað eftir árum?
     2.      Hverjir voru heildarflutningar annars vegar aflamarks og hins vegar aflahlutdeilda í botnfisktegundum frá og til þeirra 100 fyrirtækja og einstaklinga á landinu öllu sem mest viðskipti höfðu með aflaheimildir á fiskveiðiárunum 1996/1997 til 2000/2001, sundurliðað eftir árum, fyrirtækjum og einstaklingum?


Skriflegt svar óskast.