Ferill 364. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 535  —  364. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um sjúkrahótel.

Frá Þuríði Backman.



     1.      Hefur ráðherra látið kanna hagkvæmni sjúkrahótela
                  a.      fyrir sjúklinga,
                  b.      fyrir heilbrigðisþjónustuna,
                  c.      fyrir ríkissjóð,
                  d.      fyrir Tryggingastofnun ríkisins?
     2.      Hve mörgum sjúklingum hefur verið vísað frá gistingu á sjúkrahóteli Rauða krossins undanfarin fimm ár, sundurliðað eftir árum?
     3.      Hver er meðalgistitími sjúklinga á sjúkrahóteli Rauða krossins?
     4.      Hyggst ráðherra beita sér fyrir rekstri sjúkrahótela/sjúkraheimila innan heilbrigðisþjónustunnar og, ef svo er, hvenær má búast við að framkvæmdaáætlun verði lögð fram?