Ferill 365. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 536 — 365. mál.
Fyrirspurn
til menntamálaráðherra um starfsemi öldungadeilda framhaldsskóla.
Frá Margréti Frímannsdóttur.
1. Gilda reglur um greiðslur á hvern nemanda framhaldsskóla um rekstur öldungadeilda, þ.e. að aðeins er greitt fyrir þá nemendur sem þreyta próf?
2. Hversu hátt hlutfall innritaðra nemenda í öldungadeild fer í próf og hversu hátt hlutfall allra nemenda í framhaldsskólum?
3. Hverjum er ætlað að bera kostnaðinn af þeim nemendum sem þreyta ekki próf? Og hver er kostnaður vegna þeirra á síðasta ári og áætlaður kostnaður á þessu ári, sundurgreint eftir skólum?
4. Er það ætlun ráðherra að beita sér fyrir því að herða reglur um innritun nemenda í öldungadeild í samræmi við áætlaðar fjárveitingar til þessarar kennslu á árinu 2002?