Ferill 368. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 564  —  368. mál.




Fyrirspurn



til heilbrigðisráðherra um kærur vegna læknamistaka.

Frá Margréti Frímannsdóttur.



    Hver er fjöldi þeirra kærumála vegna læknamistaka sem komið hafa til kasta landlæknisembættisins árin 1990, 1995, 2000 og 2001? Ef um fjölgun er að ræða, hver er meginástæða hennar?
    Hver er þróun heildarkostnaðar landlæknisembættisins vegna meðferðar þeirra kvartana og kærumála sem embættinu hafa borist, skipt niður á árin 1990, 1995, 2000 og 2001?