Ferill 369. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 565  —  369. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um útkallstíma björgunarþyrlu og stjórn björgunaraðgerða.

Frá Guðjóni A. Kristjánssyni.



     1.      Hver er skýringin á því að viðbragðstími við útkalli á TF Líf vegna sjóslyss við Svörtuloft var svo langur sem raun bar vitni?
     2.      Hvers vegna var varnarliðsþyrla ekki kölluð út samtímis þar sem erfiðar aðstæður til björgunar við þessa strönd eru þekktar, m.a. úr sjóslysum þar sem aðeins var unnt að bjarga mönnum með þyrlu?
     3.      Hverjum í stjórnkerfi slysavarna ber að kalla eftir aðstoð varnarliðsins og hvers vegna dróst það í þessu tilviki?