Ferill 335. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 591 — 335. mál.
Svar
heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Ástu Möller um rekstrarleyfi fyrir heilbrigðisþjónustu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
1. Í hvaða tilvikum þarf rekstrarleyfi til að hefja starfsemi sem fellur undir lög um heilbrigðisþjónustu, sbr. 26. og 27. gr. laganna?
2. Í hvaða tilvikum þurfa heilbrigðisstarfsmenn sem hafa hlotið starfsréttindi frá heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra að sækja sérstaklega um leyfi til að starfrækja stofur fyrir starfsemi sína?
3. Hve margar umsóknir um rekstrarleyfi, sbr. 26. og 27. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, hafa borist ráðherra á síðustu fimm árum? Um hvaða starfsemi hefur verið sótt? Hverjum þessara umsókna hefur verið hafnað og á hvaða grundvelli?
Fjallað er um rekstrarleyfi fyrir heilbrigðisþjónustu í 26. og 27. gr. laga um heilbrigðisþjónustu, nr. 97/1990. Í 1. mgr. 26. gr. segir: „Óheimilt er að setja á stofn eða reka sjúkrahús skv. 24. gr., nema með leyfi ráðherra. Sama gildir um hvers konar aðra starfsemi, sem talin er vera í lækningaskyni.“ Í 2. mgr. kemur fram að sama máli gegni um „meiri háttar breytingar á húsakynnum og starfsemi slíkra stofnana“. Í 1. mgr. 27. gr. er fjallað um hvaða upplýsingar skuli fylgja umsókn og er þar ávallt vísað til stofnunar.
Fyrrgreind ákvæði eru efnislega óbreytt frá lögum um heilbrigðisþjónustu, nr. 56/1973. Í athugasemdum við frumvarp til þeirra laga segir um grein sem nú er 26. gr.: „Greinin er að mestu í samræmi við 1. gr. núgildandi sjúkrahúslaga og þarfnast ekki skýringa.“
1. mgr. 1. gr. sjúkrahúslaga, nr. 54/1964, var svohljóðandi: „Enginn má setja á stofn eða starfrækja undir neinu nafni sjúkrahús, sjúkraskýli, geðveikrahæli, heilsuhæli, hjúkrunar- eða hressingarheimili, baðstaði, nuddstofur, ljóslækningastofnanir, fæðingarheimili, elliheimili, barnahæli eða aðrar tilsvarandi heilbrigðisstofnanir, nema með leyfi ráðherra.“
Með 1. mgr. 26. gr. núgildandi laga varð sú breyting frá 1. mgr. 1. gr. sjúkrahúslaga, nr. 54/1964, að í stað þess að telja upp stofnanir sem sækja þarf um leyfi til að starfrækja er nú svohljóðandi ákvæði í 2. málsl. 1. mgr. 26. gr.: „Sama gildir um hvers konar aðra starfsemi, sem talin er vera í lækningaskyni.“ Núgildandi ákvæði er því, samkvæmt orðanna hljóðan, mun víðtækara en hliðstætt ákvæði sjúkrahúslaganna. Sú virðist þó ekki hafa verið ætlunin, sbr. fyrrgreinda tilvísun í athugasemdir við þá grein sem nú er 26. gr. laga um heilbrigðisþjónustu þar sem segir að greinin sé að mestu í samræmi við 1. gr. sjúkrahúslaga og þarfnist ekki skýringa. Læknastofur eru ekki nefndar í upptalningu í 1. gr. sjúkrahúslaga og ekki virðist hafa verið talið að sækja þyrfti um rekstrarleyfi fyrir læknastofu samkvæmt því ákvæði. Þrátt fyrir orðalag núgildandi ákvæðis hefur framkvæmd verið með sama hætti, þ.e. að ekki hefur verið sótt um leyfi fyrir hefðbundnum rekstri læknastofa, þó vart verði deilt um að það sé rekstur í lækningaskyni. Í framkvæmd virðist hafa verið litið svo á að ákvæðið tæki einkum til stofnana, en ekki til venjulegs stofureksturs sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna. Sá skilningur hefur nokkurn stuðning í framkvæmd fyrir setningu laga um heilbrigðisþjónustu frá 1973, athugasemdum í greinargerð með frumvarpi til þeirra laga og einnig má benda á að í 2. málsl. 1. mgr. 26. gr. og í 27. gr. er ávallt talað um stofnanir og þær upplýsingar sem fylgja eiga umsókn eru miðaðar við stofnanir. Þegar um er að ræða nýja tegund þjónustu hefur þó verið talið að sækja þyrfti um rekstrarleyfi, þó ekki væri um að ræða stofnun eða fyrirtæki. Flestar umsóknir um rekstrarleyfi hafa verið fyrir rekstur stofnana fyrir aldraða, svo sem hjúkrunarheimili, dagvist aldraðra, dvalarheimili og vistheimili. Þær umsóknir byggjast þó jafnframt á ákvæðum 17. gr. laga um málefni aldraðra, nr. 125/1999, en þar kemur fram að sækja skuli um rekstrarleyfi áður en rekstur slíkra stofnana hefst og er jafnframt vísað til laga um heilbrigðisþjónustu. Aðrar umsóknir hafa einkum verið vegna nýrrar þjónustu, svo sem sjúkrahótels við Bláa lónið, einkarekinnar heyrnartækjasölu og einkarekinnar hjúkrunarþjónustu.
Eins og rakið hefur verið hér á undan hefur verið litið svo á að ávallt þurfi að sækja um rekstrarleyfi fyrir stofnanir aldraðra. Ekki hefur verið sótt um rekstrarleyfi fyrir hefðbundinn stofurekstur sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsmanna þrátt fyrir orðalag 2. málsl. 1. mgr. 26. gr. laga um heilbrigðisþjónustu og hefur það verið látið óátalið. Hins vegar er litið svo á að þegar um er að ræða stofnanir eða fyrirtæki, eða nýja tegund þjónustu, þurfi að sækja um rekstrarleyfi.
Eins og fyrr sagði hafa heilbrigðisstarfsmenn ekki þurft að sækja um rekstrarleyfi til þess að starfrækja stofur fyrir starfsemi sína, nema umfang sé það mikið að líta megi svo á að um fyrirtæki eða stofnun sé að ræða, eða um sé að ræða nýja tegund þjónustu.
Að frátöldum umsóknum um rekstrarleyfi vegna stofnana fyrir aldraða skv. 17. gr. laga um málefni aldraða hafa borist fjórar formlegar umsóknir um rekstrarleyfi, þ.e. umsókn vegna sjúkrahótels Rauða krossins, sjúkrahótels við Bláa lónið, vegna einkarekinnar heyrnartækjasölu og einkarekinnar hjúkrunarþjónustu. Öllum þessum aðilum var veitt rekstrarleyfi. Þá barst fyrirspurn frá tveimur læknum þar sem óskað var eftir því að ráðuneytið lýsti afstöðu sinni til fyrirhugaðrar umsóknar um rekstrarleyfi fyrir einkarekna glasafrjóvgun. Ráðuneytið lýsti í svari sínu dags. 26. febrúar 1999 þeirri afstöðu sinni að það teldi óæskilegt að rekin yrði tæknifrjóvgunardeild utan Landspítalans. Í bréfi dags. 18. september 2001 ítrekaði ráðuneytið fyrri afstöðu sína og gerði ítarlega grein fyrir forsendum. Í bréfinu sagði m.a.: „Eins og gerð hefur verið grein fyrir byggist afstaða ráðuneytisins á mati á nauðsyn og gagnsemi einkarekinnar tæknifrjóvgunarstofnunar og hefur það stoð í 2. mgr. 27. gr. laga um heilbrigðisþjónustu. Jafnframt byggist hún á því markmiði að kostnaður við heilbrigðisþjónustu sé innan ramma fjárlaga og að þeim fjármunum sem veitt er til heilbrigðismála sé varið í samræmi við gildandi heilbrigðisáætlun á hverjum tíma. Ráðuneytið telur að ekki verði dregið í efa að hér sé um lögmæt markmið að ræða, sem heimilt væri að byggja á við ákvörðun um veitingu rekstrarleyfis. Erfitt er að sjá hvernig hægt væri að ná þessu lögmæta markmiði með öðrum hætti en þeim að synja um leyfi til einkarekinnar tæknifrjóvgunarstofnunar … Með vísan til framangreinds ítrekar heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið þá afstöðu sína að einkarekin heilbrigðisstofnun, þar sem framkvæmdar yrðu tæknifrjóvganir, væri við núverandi aðstæður hvorki nauðsynleg, gagnleg, né hagkvæm fyrir þjóðina.“