Ferill 282. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 594 — 282. mál.
Nefndarálit
um frv. til l. um breyt. á l. nr. 73/2001, um fólksflutninga, vöruflutninga og efnisflutninga á landi.
Frá minni hluta samgöngunefndar.
Lög nr. 73/2001 voru samþykkt á síðasta þingi og var gjald fyrir almennt rekstrarleyfi til að stunda fólksflutninga þá ákveðið 3.000 kr. Í frumvarpinu er lagt til að hækka gjaldið úr 3.000 kr. í 10.000 kr. af því að um mistök hafi verið að ræða á síðasta þingi. Gjaldið hafi með öðrum orðum átt að verða 10.000 kr. þegar frumvarpið var samþykkt í fyrra.
Í breytingartillögum meiri hlutans er í fyrsta lagi lagt til að árlegt rekstrarleyfi verði áfram óbreytt en að skoðunargjaldið hækki úr 1.000 kr. í 1.400 kr. Með þessari breytingu verður heildarskatturinn samt sem áður sá sami, um 11 millj. kr. Skattheimtan minnkar ekki heldur er henni breytt. Í öðru lagi er í breytingartillögunum tekið á skólabifreiðamálum og eru þær breytingar til bóta að mati minni hlutans.
Minni hlutinn vekur athygli á því að innheimtukostnaður af 1.000 kr. árgjaldinu var 200 kr. í hvert skipti eða um 1,2 millj. kr. á ári og hækkar þetta heildarkostnað vegna umsýslu við málaflokkinn úr 11,3 millj. kr. í 12,5 millj. kr. Fram kom í umfjöllun nefndarinnar að innheimtukostnaður yrði hinn sami þótt gjaldið hækkaði.
Samkvæmt lauslegri áætlun minni hlutans hefur að frumkvæði samgönguráðuneytisins verið lagðir á nýir skattar upp á um 56–60 millj. kr. á ýmiss konar samgöngustarfsemi nú á síðustu missirum, svo sem:
Flugmiðaskattur | um 35–45 millj. kr. |
Leigubifreiðaskattur | um 10 millj. kr. |
Fólks- vöru- og sendibifreiðaskattur | um 11 millj. kr. |
Minni hlutinn er á móti þessari skattlagningu á tæki til fólksflutninga og önnur samgöngutæki, og telur að atvinnugreinin greiði nú þegar nóg til ríkissjóðs af starfsemi sinni. Af þessum sökum getur minni hlutinn ekki stutt frumvarpið.
Alþingi, 12. des. 2001.
Kristján L. Möller,
frsm.
Lúðvík Bergvinsson.
Jón Bjarnason.
Fylgiskjal.
Áætlun um kostnað Vegagerðarinnar vegna verkefna
við umsjón og eftirlit með fólks- og vöruflutningum.
Áætlaður fjöldi bifreiða
6.000
|
|
Áætlaður fjöldi leyfa | |
Vöruflutningabifreiðar | 50 |
Sendibifreiðar | 500 |
Vörubifreiðar | 350 |
Hópferðabifreiðar | 300 |
Samtals | 1.200 |
Leyfi gefin út frá einu til fimm ára . um 300 leyfi á ári
Kostnaður: | m.kr. | |
Hálft starf skrifstofumanns | 2,3 | |
Hálft starf eftirlitsmanns, | 2,8 | |
Hálft starf lögreglumanns | 3,0 | |
Akstur eftirlitsbifreiða | 2,3 | |
Námskeiðskostnaður | 0,3 | |
Stjórnun, umsjón, húsnæði 5% | 0,6 | |
Samtals | 11,3 |
Áætlaðar gjaldtökur að teknu tilliti breytingartillögu meiri hlutans um hækkun á gjaldi fyrir hverja bifreið úr 1.000 kr. í 1.400 kr. |
|||
Fjöldi leyfa |
Gjald fyrir leyfi á ári | m.kr. |
|
Leyfi fyrir fólksflutningabifreiðar | 300 | 3.000 | 0,9 |
Leyfi fyrir sendibifreiðar | 500 | 3.000 | 1,5 |
Leyfi fyrir aðrar vöru- og efnisflutningabifreiðar | 400 |
3.000 |
1,2 |
Sérleyfi og einkaleyfi | 20 | 20.000 | 0,4 |
Leyfi fyrir sérbúnar bifreiðar | 50 | 4.000 | 0,2 |
Árlegt gjald, 1.400-200=1.200 á hverja bifreið | 6.000 |
1.200 |
7,2 |
Samtals | 11,4 |