Ferill 380. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 614  —  380. mál.




Fyrirspurn



til fjármálaráðherra um álagningu skatta.

Frá Pétri H. Blöndal.



     1.      Hefur komið fyrir að skattgreiðendur, sem skattstjóri hefur lagt á skatta á grundvelli tekjuáætlunar samkvæmt lögum um tekjuskatt og eignarskatt, hafi misst íbúðir eða eignir sínar á uppboði, orðið gjaldþrota eða farið í fangelsi vegna skattskulda jafnvel þó að mál þeirra séu enn í kærumeðferð?
     2.      Hefur komið fyrir að eftir að fyrrnefndir skattgreiðendur hafa misst eignir sínar, orðið gjaldþrota eða farið í fangelsi hafi kæra þeirra verið tekin til greina og álagning skattstjóra verið lækkuð eða felld niður? Ef svo er, hver er þá staða skattgreiðendanna?
     3.      Hefur komið fyrir að skattstjórinn í Reykjavík hafi lækkað eða fellt niður álagningu skatta en tollstjórinn í Reykjavík, sem innheimtuaðili skuldarinnar, haldi áfram óbreyttri innheimtu?