Ferill 381. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 615 — 381. mál.
Fyrirspurn
til fjármálaráðherra um virðisaukaskattsskyldan reikning.
Frá Pétri H. Blöndal.
1. Hver ber innheimtukostnað ríkissjóðs, dráttarvexti og álag samkvæmt lögum um virðisaukaskatt sem leggst á virðisaukaskatt í vanskilum í þeim tilvikum er virðisaukaskattsskyldur reikningur fæst ekki greiddur á tilskildum tíma eða aldrei?
2. Hver ber sambærilegan kostnað vegna tekjuskatts af tekjum unninnar eða bókfærðrar þjónustu þegar innheimta þeirra dregst í mörg ár?