Ferill 383. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 617  —  383. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um mannréttindabrot gegn samkynhneigðum körlum í Egyptalandi.

Flm.: Guðrún Ögmundsdóttir, Ólafur Örn Haraldsson, Kolbrún Halldórsdóttir,


Sverrir Hermannsson, Lúðvík Bergvinsson, Katrín Fjeldsted.


    
    Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að beita sér fyrir því á alþjóðavettvangi að mannréttindabrot stjórnvalda í Egyptalandi gegn samkynhneigðum körlum verði stöðvuð og að þeir sem dæmdir hafa verið í fangelsi sökum kynhneigðar sinnar verði leystir úr haldi þegar í stað án eftirmála. Þá skorar Alþingi á ríkisstjórnina að hvetja þjóðir heims til nauðsynlegra aðgerða gegn stjórnvöldum í Egyptalandi til þess að þau sjái að sér og virði alþjóðasáttmála um almenn mannréttindi.

Greinargerð.


    Hinn 14. nóvember kvað sérstakur dómstóll í Kaíró upp dóma yfir 52 karlmönnum sem setið hafa í haldi síðan í maí fyrir að vera samkynhneigðir. Af þeim voru 23 dæmdir til þrælkunarvinnu – frá einu ári og upp í fimm. Ekki er hægt að áfrýja þessum dómum. Hinir 29 voru sýknaðir. Mennirnir voru allir dæmdir af Öryggis- og neyðardómstóli ríkisins (á ensku Emergency State Security Court) sem telur sig ekki bundinn af þeim alþjóðasáttmálum sem Egyptaland á aðild að, sáttmálum sem þjóna þeim tilgangi að tryggja réttaröryggi og mannréttindi þegnanna. Slík túlkun mun þó reist á veikum grunni þar sem ekki ríkja herlög í landinu.
    Forsaga málsins er sú að aðfaranótt 11. maí í vor réðst öryggislögregla Egyptalands ásamt hópi frá siðgæðislögreglu ríkisins til inngöngu á diskótekið Queen Boat í Kaíró, en sá staður nýtur vinsælda meðal samkynhneigðra þar í landi sem á síðustu árum hafa myndað hópa. Nokkrir voru handteknir á staðnum þá um nóttina en aðrir víðs vegar um borgina næstu daga. Þegar eltingarleik öryggislögreglunnar lauk í það sinn sátu 52 í fangelsi. Í yfirlýsingum lögreglunnar voru þeir allir sagðir samkynhneigðir. Hafa ber í huga að mök tveggja af sama kyni eru ekki refsiverð samkvæmt lögum Egypta. Til þess að réttlæta handtökur karlmannanna 52 varð að beita öðrum leiðum. Engu að síður leynir sér ekki að meint kynhneigð þeirra er hinn eiginlegi ásteytingarsteinn. Smám saman tóku að berast fregnir úr fangelsum Kaíró af grófum pyndingum og misþyrmingum mannanna. Aðbúnaður þeirra er skelfilegur, enga læknishjálp að fá og heimsóknir takmarkaðar. Í dagblöðum Egyptalands hafa verið birtar myndir af föngunum í því skyni að auðmýkja þá og fjölskyldur þeirra.




Prentað upp.

    Málaferli hófust yfir mönnunum 18. júlí. Fimmtíu þeirra voru sakaðir um „siðlaust athæfi“ með vísun til greinar 9c í lögum nr. 10 frá 1961 um „baráttu gegn vændi“. Tveir voru auk þess sakaðir um „svívirðu við trúarbrögðin“ með vísun til greinar 98f í refsilögunum. Allir mennirnir 52 lýstu yfir sakleysi sínu og báru fram varnir. Dómar yfir mönnunum féllu 14. nóvember og voru á þessa leið:
          einn, talinn „forsprakki“ hópsins, var dæmdur í fimm ára þrælkunarvinnu fyrir „siðlaust athæfi“ og „svívirðu við trúarbrögðin“,
          einn var dæmdur í þriggja ára þrælkunarvinnu fyrir „svívirðu við trúarbrögðin“,
          20 karlmenn voru dæmdir í tveggja ára þrælkunarvinnu fyrir „siðlaust athæfi“,
          einn var dæmdur í eins árs þrælkunarvinnu fyrir „siðlaust athæfi“,
          29 voru sýknaðir. Ekki er ljóst hvenær þeim verður sleppt úr haldi. Samkvæmt heimildum getur saksóknari áfrýjað dómum að 30 dögum liðnum og fengið mál hinna sýknuðu tekin upp að nýju. Auk þessa var piltur nokkur dæmdur af unglingadómstóli 18. september í þriggja ára fangelsi fyrir „siðlaust athæfi“, en vegna ungs aldur fær hann að áfrýja máli sínu.
    Þjóðþing og mannréttindastofnanir víða um heim hafa mótmælt atburðunum í Egyptalandi, þar á meðal fulltrúadeild Bandaríkjaþings og Sameinuðu þjóðirnar. Um leið berast mannréttindasamtökum reglulega fréttir af frekari fangelsunum karlmanna fyrir samkynhneigð. Erfitt er þó að átta sig á þróun mála í Egyptalandi og hvert stefnir í raun og veru, þar sem samkynhneigðir þar í landi fara leynt um þessar mundir og forðast flestir að tjá sig við erlenda fréttamenn og starfsmenn mannréttindastofnana.
    Samtök samkynhneigðra um allan heim hvetja nú til skipulagðra mótmæla og ýmis mannréttindasamtök hafa tekið málið upp. Mikilvægt er að Ísland skipi sér í framvarðarsveit þeirra sem mótmæla mannréttindabrotunum sem eiga sér stað í Egyptalandi og taki málið upp á alþjóðavettvangi.