Ferill 341. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 620 — 341. mál.
Svar
dómsmálaráðherra við fyrirspurn Guðrúnar Ögmundsdóttur um rannsókn á dreifingu barnakláms á netinu.
Fyrirspurnin hljóðar svo:
Hver er ástæða þess að Ísland er ekki í hópi þeirra nítján ríkja sem nú beita sér fyrir rannsókn á dreifingu klámmynda af börnum á netinu?
Ástæða þess að Ísland er ekki með í hópi þeirra nítján ríkja sem taka þátt í rannsókninni sem að ofan er getið er að um er að ræða sérstaka rannsókn á ákveðnu sakamáli, sem ekki hefur teygt anga sína til Íslands. Þau 19 ríki sem eru viðloðandi rannsóknina eru hins vegar ríki sem með einu eða öðru móti tengjast rannsókn málsins. Sökum þess að brotastarfsemin og þeir sem grunaðir eru í málinu hafa ekki tengst Íslandi á nokkurn hátt hefur íslenskum lögregluyfirvöldum ekki verið skýrt frá rannsókninni og ekki verið gefinn kostur á að koma að henni. Dómsmálaráðuneytið vill þó vekja athygli á að íslenska ríkið tekur þátt í öflugu samstarfi á þessu sviði í gegnum Interpol. Fulltrúi frá alþjóðadeild ríkislögreglustjóra sækir fundi hjá sérfræðingahópi Interpol um brot gegn börnum (Standing Working Party on Crimes Against Children) tvisvar á ári. Eitt af viðfangsefnum sérfræðinganefndarinnar hefur verið að leita aðferða til að sporna við barnaklámi á netinu. Samvinna milli Interpol-ríkja hefur verið mjög virk og er gott tæki í baráttunni gegn barnaklámi. Þá má einnig nefna að á þessu ári gerðu íslenska ríkið og Europol með sér samstarfssamning. Samningurinn styrkir enn frekar lögreglusamvinnu milli þeirra ríkja sem aðilar eru að samstarfinu.