Ferill 280. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 621  —  280. mál.




Svar



félagsmálaráðherra við fyrirspurn Kristjáns L. Möllers um launagreiðslur og tryggingagjald sveitarfélaga.

     1.      Hverjar voru heildarlaunagreiðslur og greitt tryggingagjald 25 stærstu sveitarfélaganna og stofnana þeirra (þ.m.t. hlutafélaga þeirra, s.s. orkuveitna) sl. fimm ár, skipt eftir sveitarfélögum?
    Eftirfarandi tafla sýnir greitt tryggingagjald 25 stærstu sveitarfélaganna að meðtöldum fyrirtækjum þeirra og tryggingagjaldsstofn, sbr. II. kafla laga um tryggingagjald, nr. 113/1990.

     Greitt tryggingagjald, á verðlagi hvers árs.


Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.


    Tekið skal fram að fyrirtæki í sameiginlegri eigu sveitarfélaga og annarra aðila eru ekki meðtalin í ofangreindum fjárhæðum.
    Vísað er í fylgiskjal um sundurliðun á framangreindum upplýsingum eftir sveitarfélögunum.

     2.      Hversu mikið hækkar álagt tryggingagjald sömu sveitarfélaga í krónum talið samanborið við árið 2000, ef tryggingagjaldið hækkar um 0,77 prósentustig eins og boðað er í frumvarpi til laga um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald o.fl. (þskj. 114, 114. mál)?
    Verði framangreint frumvarp að lögum er áætlað að greitt tryggingagjald umræddra 25 sveitarfélaga aukist um 254,7 millj. kr. miðað við tryggingagjaldsstofn ársins 2000. Vísað er í fylgiskjal um nánari sundurliðun eftir sveitarfélögum.





Fylgiskjal.

Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.




Hér er efni sem sést aðeins í pdf-skjalinu.