Ferill 392. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 649 — 392. mál.
Beiðni um skýrslu
frá dómsmálaráðherra um stöðu og þróun löggæslu.
Frá Jóhönnu Sigurðardóttur, Össuri Skarphéðinssyni, Guðmundi Árna Stefánssyni, Sigríði Jóhannesdóttur, Kristjáni L. Möller, Gísla S. Einarssyni,
Guðrúnu Ögmundsdóttur, Karli V. Matthíassyni og Ástu R. Jóhannesdóttur.
Með vísan til 46. gr. laga um þingsköp Alþingis er þess óskað að dómsmálaráðherra flytji Alþingi skýrslu um stöðu og þróun löggæslu á undanförnum árum með hliðsjón af brotatíðni, almannaöryggi og réttaröryggi íbúa í samræmi við lögreglulög. Jafnframt er þess óskað að ráðherra geri grein fyrir úrbótum sem nauðsynlegar eru til að styrkja löggæslu og öryggi og þjónustu við landsmenn.
Í skýrslunni er óskað svara við eftirfarandi spurningum:
1. Hver var fjöldi almennra lögreglumanna miðað við fjölda íbúa á árunum 1990, 1995 og 2001, skipt eftir umdæmum, og hvernig var skiptingin milli yfirmanna og undirmanna? Óskað er eftir að fram komi meðalstarfsaldur almennra lögreglumanna í upphafi og lok síðasta áratugar og fjölgun lögreglumanna samanborið við fjölgun opinberra starfsmanna á tímabilinu.
2. Hver hefur raunhækkun framlaga (á föstu verðlagi) til almennrar löggæslu verið árlega sl. fimm ár, skipt eftir lögregluumdæmum, og hver hefur verið fjölgun íbúa, bifreiða og veitingastaða með áfengisleyfi á sama tíma?
3. Hver var fjöldi starfandi lögreglumanna í almennri deild lögreglunnar í Reykjavík árin 2000 og 2001 samanborið við aðrar höfuðborgir í Evrópu?
4. Hver var lágmarksfjöldi starfandi lögreglumanna á vakt í almennri deild lögreglunnar í Reykjavík árin 1992, 1995, 1998 og 2001 samanborið við lágmarksþörf samkvæmt fjárlagatillögum embættis lögreglustjórans í Reykjavík á þessum árum?
5. Hve margar lögreglubifreiðar og hversu margir almennir lögreglumenn voru við umferðaröryggisgæslu í Reykjavík árið 1991 annars vegar og árið 2001 hins vegar og hver var bifreiðaeign höfuðborgarbúa á þessum árum? Hve margir löggæslumenn störfuðu við vegaeftirlit á árunum 1990, 1995 og 2001 og hve margar lögreglubifreiðar voru til umráða á landinu öllu á þessum árum?
6. Hve margir lögreglumenn voru á vakt allan sólarhringinn við almenna löggæslu í miðborginni og úthverfum um kvöld og helgar hvert ár um sig árin 1997–2001? Hvernig hefur grenndarlöggæslu verið háttað á höfuðborgarsvæðinu árlega sl. þrjú ár?
7. Hve margir hafa starfað að fíkniefnamálum á landinu öllu annars vegar og við fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík hins vegar árlega sl. fimm ár? Óskað er eftir að fram komi ef fjölgun við fíkniefnadeildina í Reykjavík er fengin með flutningi frá öðru verksviði eða deild lögreglunnar og hvort þær stöður hafi verið mannaðar aftur.
8. Hve margir rannsóknarlögreglumenn starfa nú við rannsókn brotamála, skipt eftir brotaflokkum, og hver hefur árlegur fjöldi mála á þessu sviði verið sl. fimm ár? Hve langur tími leið að meðaltali á árinu 1995 annars vegar og árinu 2000 hins vegar frá kæru mála þar til rannsókn hófst? Hversu mörg mál liggja fyrir nú sem kært hefur verið í, en rannsókn ekki hafin á?
9. Hver hefur fjöldi yfirvinnustunda og kostnaður vegna yfirvinnu verið við almenna löggæslu í Reykjavík árlega sl. fimm ár og hver voru meðalbrúttólaun almenns löggæslumanns á árinu 1995 annars vegar og á árinu 2001 hins vegar á sambærilegu verðlagi?
10. Hver hefur verið fjöldi eftirfarandi brota sl. fimm ár:
a. alvarlegra líkamsárása,
b. auðgunarbrota,
c. kynferðisbrota,
d. fíkniefnabrota (innflutningur og neysla),
e. áfengislagabrota,
f. umferðarlagabrota?
11. Hver var beinn kostnaður vegna eignatjóns í umferðinni árin 1990, 1995 og 2001?
12. Hve mikil raunaukning hefur orðið á fjármunum sem varið hefur verið árlega frá árinu 1995 til 2002 til beinna aðgerða og forvarna gegn fíkniefnum? Óskað er nákvæmrar sundurliðunar á raunaukningu framlaga til einstakra þátta og skilgreiningar á því ef um tilfærslu hefur verið að ræða frá öðrum verkefnum, t.d. á sviði rannsókna eða annarra löggæsluþátta.
13. Hver var áætlaður kostnaður við embætti ríkislögreglustjóra við stofnun embættisins 1997 og hvernig hefur hann þróast fram til þessa árs? Hver hefur orðið árleg þróun á fjölda starfsmanna frá stofnun embættisins, skipt eftir undirmönnum annars vegar og stjórnendum hins vegar?
14. Hvernig hefur kostnaður við embætti ríkislögreglustjóra skipst árlega frá stofnun embættisins milli eftirfarandi þátta:
a. launakostnaðar, skipt eftir stjórnendum embættisins annars vegar og öðrum starfsmönnum hins vegar,
b. annars rekstrarkostnaðar, sundurliðað milli helstu rekstrarþátta,
c. kostnaðar vegna eignakaupa, sundurliðað eftir tegundum eigna?
15. Hve margar lögreglubifreiðir voru á hverri vakt í Reykjavík á árinu 1991 annars vegar og 2001 hins vegar, skipt eftir hverfum, dag-, kvöld- og helgarvöktum? Ef gæsla vegna erlendra sendiráða er inni í upplýsingum fyrir árið 2001 óskast það tilgreint sérstaklega. Sambærilegar upplýsingar óskast líka fyrir stærstu lögregluumdæmin.
16. Hver er fjöldi ofbeldisverka gagnvart lögreglumönnum annars vegar á árunum 1990– 1995 og hins vegar 1996–2001, skipt eftir:
a. tilkynntum tilvikum, sbr. dagbókarfærslur,
b. kærum frá einstökum lögreglumönnum?
17. Hverra úrbóta er þörf í málefnum lögreglu og löggæslu að mati dómsmálaráðherra?
18. Er ráðherra reiðubúinn að beita sér fyrir skilgreiningu á lágmarksþjónustu og lágmarksfjölda lögreglumanna í hverju umdæmi og deild fyrir sig til að gætt sé almannaöryggis og réttaröryggi íbúa sé tryggt í samræmi við lögreglulög?
Greinargerð.
Málefni löggæslunnar hafa verið mikið í sviðsljósinu á undanförnum mánuðum og missirum. Margir óttast að mikill niðurskurður sem orðið hefur á framlögum til löggæslu ógni öryggi og þjónustu við íbúana, enda hefur tíðni afbrota farið vaxandi. Í lögreglulögum er skýrt kveðið á um að ríkið eigi að halda uppi starfsemi lögreglu til að gæta almannaöryggis og tryggja réttaröryggi borgaranna.
Á umliðnum árum hefur lögreglumönnum fækkað mjög í Reykjavík. Voru 490 íbúar á lögreglumann á sl. ári, en 402 árið 1998. Samkvæmt ársskýrslu lögreglustjórans í Reykjavík fyrir árið 2000 kemur fram að auðgunarbrotum hefur fjölgað milli ára, auk þess sem aukning hefur orðið á innflutningi fíkniefna, um 52% á milli ára. Umferðarlagabrotum fjölgaði líka verulega, um 12% milli ára. Þá hefur alvarlegum líkamsárásum fjölgað og kynferðisbrotum hefur fjölgað jafnt og þétt, um 52% frá árinu 1996. Á meðan hert hefur verið að með miklum niðurskurði framlaga til almennrar löggæslu hefur rekstur og starfslið við embætti ríkislögreglustjóra vaxið verulega. Nauðsynlegt er að skoða samhengi í framlögum almennt til rekstrar löggæslu í landinu og hvort þær breytingar sem urðu á skipulagsmálum löggæslu með stofnun embættis ríkislögreglustjóra hafi náð tilætluðum árangri. Margt bendir til þess aukningin sem orðið hefur í rekstri þess embættis hafi bitnað harkalega á almennri löggæslu í landinu.
Í fjölda lögregluumdæma hafa skapast vandamál vegna niðurskurðar framlaga til löggæslu, ekki síst í miðborg Reykjavíkur, þar sem lögreglan er orðin lítt sýnileg. Alþingi ber skylda til að kanna þessi mál til hlítar og því er skýrslubeiðni þessi lögð fram. Svör við þeim spurningum sem bornar eru upp gætu auðveldað stjórnvöldum og löggjafarþingi að meta til hvaða aðgerða er nauðsynlegt að grípa til að tryggja viðunandi öryggi og þjónustu við íbúa landsins og að það fjármagn sem til þessa málaflokks er varið nýtist sem best í samræmi við markmið lögreglulaga.
Þess er óskað að skýrslan verði tekin til umræðu á Alþingi fljótlega eftir að henni hefur verið útbýtt til þingmanna.