Ferill 305. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 665 — 305. mál.
Svar
samgönguráðherra við fyrirspurn Hjálmars Árnasonar um kostnað við niðurflutning gagna af netinu.
1. Hvers vegna lætur Landssíminn notendur netsins (veraldarvefsins) greiða eftir magni við niðurflutning gagna (download) af netinu?
Hægt er að innheimta gjöld fyrir notkun netsins (veraldarvefsins) á ýmsan hátt en hefð er fyrir því að notendur greiði fyrir slíka þjónustu í hlutfalli við notkun. Þeirri hefð var reyndar komið á áður en Landssíminn náði góðri markaðshlutdeild í þessari þjónustu. Aðferðin hefur þann kost að notendur greiða eingöngu fyrir það gagnamagn sem þeir sjálfir sækja á netið. Önnur aðferð við innheimtu fyrir netnotkun er að notendur greiði fast verð fyrir aðgang að ákveðinni bandvídd í netinu, óháð notkun. Hún hefur þann ókost að þeir sem nota netið lítið greiða kostnað sem beinlínis fellur til vegna notkunar hinna sem nota netið mikið. Dýrara er að reka netþjónustu á Íslandi en á meginlandinu. Sem dæmi um kostnað má nefna rekstur á sæstreng, rekstur á varaleiðum um gervihnött, aðgang að neti erlendis og rekstur á neti innan lands en fleira mætti nefna.
2. Á hverju byggir Landssíminn nú verðmyndun?
Landssíminn er rekinn á sömu forsendum og flest önnur fyrirtæki í landinu þannig að verðmyndun fer eftir kostnaði við rekstur og aðstæðum á markaði hverju sinni.
3. Hve mikið kostar hvert gígabæti Landssímans erlendis frá?
Landssíminn telur það stríða gegn viðskiptahagsmunum sínum að upplýsa opinberlega um kostnaðarverð á aðföngum.
4. Hverjum greiðir Landssíminn fyrir slíka notkun?
Landssíminn greiðir þjónustuaðilum sínum erlendis fyrir netþjónustu, auk þess sem netþjónustan verður að bera kostnað af flutningslínu til útlanda sem verður því dýrari sem meira af gögnum er flutt eftir henni. Flutningur gagna og tals milli Íslands og annarra landa er og verður dýrari en milli annarra landa í okkar heimshluta einfaldlega vegna þess að lönd í Evrópu þurfa ekki að standa undir kostnaði við sæstrengi til að hafa samband sín á milli og kostnaður við sæstrengi þvert yfir Atlantshafið er mun minni en við strengi til Íslands vegna meiri umferðar um þá strengi.
5. Eru notendur í Evrópu og Bandaríkjunum látnir greiða eftir magni við niðurflutning gagna af netinu?
Samkvæmt upplýsingum frá samstarfsaðilum erlendis greiða einstaklingar yfirleitt ekki eftir magni en það er þó að breytast þar sem einstaklingar hafa í auknum mæli aðgang að bandbreiðum tengingum. Fyrirtæki greiða yfirleitt föst gjöld með innifalinni notkun eða eftir magni.
6. Í hverju felst kostnaður við magn á niðurflutningi gagna eftir að tenging hefur átt sér stað?
Til þess að fá aðgang að netinu þarf notandinn að kaupa samband frá sér inn til netþjónustu (internetþjónustu) Landssímans í Ármúla 25, Reykjavík. Netþjónusta Landssímans fær ekki tekjur af þessum samböndum. Þegar samband er komið á þarf notandinn að kaupa áskrift að netinu. Kostnaðurinn við netið er vegna sæstrengs, varasambanda um gervihnött, netþjónustu erlendis og fleiri þátta.