Ferill 408. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 667 — 408. mál.
Fyrirspurn
til samgönguráðherra um fjárveitingar til jarðgangagerðar.
Frá Einari K. Guðfinnssyni.
1. Hverjar voru heildarfjárveitingar til vegamála á núgildandi verðlagi frá árinu 1980?
2. Hve miklu fé var varið til jarðgangagerðar á sama tíma?
3. Hvað voru fjárveitingar til jarðgangagerðar hátt hlutfall af heildarfjárveitingum til vegamála á þessu tímabili?
Skriflegt svar óskast.