Ferill 409. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 668  —  409. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um ferjusiglingar Herjólfs milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar.

Frá Kristjáni Pálssyni og Drífu Hjartardóttur.



     1.      Hver er kostnaður við ferjusiglingar Herjólfs milli Vestmannaeyja og Þorlákshafnar miðað við núverandi áætlun og hve margar ferðir eru á viku?
     2.      Verður ferðum fjölgað í tvær á sólarhring alla daga vikunnar?
     3.      Hvaða kostnaðarauki mun fylgja því að fjölga ferðum í tvær á dag allt árið?
     4.      Hvernig verða ferjusiglingar á meðan Herjólfur er í slipp?