Ferill 412. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 671  —  412. mál.




Fyrirspurn



til menntamálaráðherra um svæðisútvarp Ríkisútvarpsins.

Frá Ísólfi Gylfa Pálmasyni.



     1.      Hver eru áform menntamálaráðherra og stjórnenda Ríkisútvarpsins um svæðisútvarp í framhaldi af flutningi Rásar tvö til Akureyrar?
     2.      Verður byggt upp svæðisútvarp á vegum Ríkisútvarpsins í þeim landshlutum þar sem það er ekki, svo sem á Suðurlandi og Vesturlandi?
     3.      Verður tillit tekið til breytinga á kjördæmaskipan við fyrirhugaða styrkingu svæðisútvarps?