Ferill 422. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 682 — 422. mál.
Fyrirspurn
til utanríkisráðherra um framlög til þróunarmála.
Frá Þórunni Sveinbjarnardóttur.
1. Hver voru framlög íslenska ríkisins til þróunarmála, sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu (VÞF), á árunum 1997–2001?
2. Hver voru framlög íslenska ríkisins til tvíhliða þróunarverkefna á vegum Þróunarsamvinnustofnunar, sem hlutfall af VÞF, fyrir hvert þessara ára?
3. Hver voru framlög íslenska ríkisins til marghliða þróunarverkefna, sem hlutfall af VÞF, fyrir hvert þessara ára?
Skriflegt svar óskast.