Ferill 441. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.
127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 708 — 441. mál.
Frumvarp til laga
um breytingu á tollalögum, nr. 55/1987, með síðari breytingum.
Flm.: Magnús Stefánsson, Vilhjálmur Egilsson,
Gísli S. Einarsson, Jón Bjarnason.
1. gr.
2. gr.
Greinargerð.
Samkvæmt 1. gr. tollalaga eru aðaltollhafnir skilgreindar sem staður þar sem för í utanlandsferðum mega fá fyrstu og síðustu afgreiðslu hér á landi og hvers konar tollmeðferð vöru má fara fram. Í 28. gr. laganna eru taldar upp og skilgreindar hverjar eru aðaltollhafnir. Er um 17 hafnir að ræða umhverfis landið.
Grundartangahöfn er ein umsvifamesta vöruflutningahöfn landsins og í höfninni ferma og afferma fyrst og fremst millilandaskip. Flutningar um höfnina tengjast Járnblendiverksmiðjunni og Norðuráli, en með uppbyggingu þessara fyrirtækja mörg undanfarin ár hafa umsvif aukist mjög. Fjöldi skipakoma í Grundartangahöfn hefur nær tvöfaldast frá árinu 1995 og var um 180 árið 2001.
Þrátt fyrir mikil umsvif í Grundartangahöfn hefur aðeins einn lögreglumaður tollafgreiðslu með höndum, auk tilfallandi aðstoðar. Augljóst er að umsvif tollgæslu eru allt of lítil og býður það upp á hættu á ólöglegum innflutningi varnings. Mesta hættan í því sambandi er ólöglegur innflutningur eiturlyfja.
Stjórnvöld hafa hert stórum eftirlit með innflutningsleiðum eiturlyfja, með miklum árangri. Samhliða því hefur ekki verið hert eftirlit með Grundartangahöfn sem býður augljóslega upp á möguleika á ólöglegum innflutningi eiturlyfja og annars ólöglegs varnings.
Sveitarstjórnarmenn, hafnaryfirvöld og aðrir aðilar hafa komið á framfæri áhyggjum sínum af þessu máli, og 9. október 2001 ályktuðu bæjarstjórnir Borgarbyggðar og Akraneskaupstaðar um málið og skoruðu á stjórnvöld að tryggja fjármagn til að halda uppi nauðsynlegri tollgæslu við Grundartangahöfn. Bent er á að löngu sé orðið tímabært að efla tollgæslu á Grundartanga og gera höfnina að aðaltollhöfn.