Ferill 456. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 730  —  456. mál.




Tillaga til þingsályktunar



um áhrif lögbindingar lágmarkslauna.

Flm.: Gísli S. Einarsson, Jóhanna Sigurðardóttir, Guðmundur Árni Stefánsson,


Sigríður Jóhannesdóttir, Kristján L. Möller, Karl V. Matthíasson.


    Alþingi ályktar að fela forsætisráðherra að láta gera úttekt á áhrifum þess að lögbinda lágmarkslaun á Íslandi.

Greinargerð.


    Fyrsti flutningsmaður þessarar tillögu hefur flutt frumvarp til laga um lögbindingu lágmarkslauna á síðustu þingum ásamt fjölmörgum meðflytjendum. Þrátt fyrir ítrekaðan rökstuðning og ábendingar hefur málið ekki náð fram að ganga. Þess vegna er nú farin sú leið að freista þess að leita eftir því að skipuð verði nefnd sérfræðinga sem skoði allar hliðar þessa máls.
    Í fjölmörgum löndum hafa lágmarkslaun verið lögbundin með góðum árangri. Benda má á að fjármálaráðherra Bretlands hefur í ræðu og riti staðfest að efnahagslegur árangur hafi orðið afleiðing slíkrar löggjafar. Löggjöf um lágmarkslaun hefur verið við lýði í Bandaríkjunum um árabil og telja fjölmargir að þar hafi nauðsyn lögbindingar lágmarkslauna sannað sig. Jafnframt má nefna að í Frakklandi þar sem lögbinding lágmarkslauna er hluti af efnahagskerfinu nota menn þau sem mælistiku og grunn fyrir afkomu einstaklinga.
    Einkenni íslensks hagkerfis eru hin lágu taxtalaun. Um nokkra hríð hefur ekki verið hægt að framfleyta fjölskyldu með lægstu taxtalaunum. Launakerfið á Íslandi einkennist af umfangsmiklum feluleik með raunveruleg launakjör. Þó hefur verið reynt að bæta þar úr að nokkru í síðustu kjarasamningum og hafa ýmiss konar aukagreiðslur komið til viðbótar taxtalaunum. Annað einkenni á íslensku atvinnulífi er hve langan vinnutíma íslenskir launamenn vinna. Lífskjörum hér á landi, sem eru betri en launin gefa til kynna, er því fyrst og fremst haldið uppi með löngum vinnudegi.
    Hjálparstarf hefur sífellt aukist innan lands vegna bágs ástands. Samkvæmt upplýsingum hjálparstofnana og ýmissa líknaraðila hafa þúsundir einstaklinga notið matargjafa sökum fátæktar. Félagsleg aðstoð sveitarfélaga hefur aukist svo síðustu ár að þeim er mörgum um megn að sinna þeim skyldum sínum.
    Hægt er að sýna fram á að séu lágmarkslaun ákveðin of há geti það leitt til þess að það dragi úr vinnu í viðkomandi hagkerfi. Þetta eru helstu rök gegn lögbindingu lágmarkslauna. Að mati flutningsmanna eiga þau ekki við aðstæður hérlendis. Atvinnuástand hér á landi er einnig að mörgu leyti mun betra en í nágrannalöndunum. Að skapa umhverfi fyrir sérhæfð störf, hálaunastörf, er vitaskuld háð mörgum þáttum, m.a. menntakerfi og því sem varið er í rannsóknir og þróunarstarf innan og utan fyrirtækja. Á þessu sviði er stefna ríkisstjórnarinnar ekki markviss. Ekki hefur verið unnið nóg hérlendis í menntamálum og rannsóknum undanfarna áratugi.
    Íslendingar verða að gera upp við sig hvort hér verði láglaunasvæði eins og allt stefnir í og landsmenn neyðist til að vinna langan vinnudag til að halda uppi sambærilegum lífskjörum og í nágrannalöndunum eða hvort þróa eigi hagkerfið í átt til sérhæfðra starfa sem eru betur launuð. Flutningsmenn efast ekki um að síðari leiðin er gæfuríkari fyrir land og þjóð.
    Þingsályktunartillaga þessi er liður í þeirri stefnumörkun jafnaðarmanna að skapa hér mannsæmandi umhverfi fyrir launafólk og stuðla jafnframt að heilbrigðu og þróttmiklu efnahagslífi. Ef þessi leið verður ekki farin og taxtalaunin látin eiga sig eina ferðina enn í næstu kjarasamningum mun sífellt stærri hópur launamanna sitja eftir með lágmarkstaxta og eiga sér ekki viðreisnar von. Við megum ekki láta mál þróast á þann veg.