Ferill 461. máls. Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect.


127. löggjafarþing 2001–2002.
Þskj. 741  —  461. mál.




Fyrirspurn



til viðskiptaráðherra um heimild til að veita undanþágu frá banni við samkeppnishömlum.

Frá Einari K. Guðfinnssyni.



     1.      Hefur olíufélögunum verið veitt undanþága skv. 16. gr. samkeppnislaga, nr. 8/1993, með síðari breytingum, til að standa saman að rekstri bensínstöðva í litlum bæjarfélögum á landsbyggðinni? Ef ekki, hvaða rök liggja að baki þeirri ákvörðun?
     2.      Getur slíkur samrekstur ekki verið forsenda þess að unnt sé að halda uppi eðlilegri þjónustu á þessu sviði í fámennari byggðarlögum?